Glamour sýndi í beinni útsendingu frá sýningunni hér á Vísi í gær en myndbandið frá sýningunni má sjá í heild sinni hér fyrir neðan. Neðst í fréttinni má sjá nokkrar myndir af línunni og frá þessum flotta tískuviðburði.
Sjá einnig: Tískusýning Geysis í Héðinshúsinu
Yfirhönnuður Geysis er Erna Einarsdóttir en Skugga-Sveinn er hennar fjórða lína fyrir Geysi. Fatnaðurinn er innblásinn af íslensku konunni og hennar hversdagslífi í borginni, með sterkum vísunum í íslenskan lista- og menningarheim. Haustherferðin sækir nafn sitt í hið þekkta leikverk Skugga-Svein með skírskotun í leiktjöld sem máluð voru af Sigurði málara Guðmundssyni fyrir fyrstu uppsetningu verksins árið 1862.
Að lokinni sýningunni í gær hélt DJ Margeir uppi stuðinu langt fram á kvöld. Léttar veitingar voru í boði og sýningagestir voru leystir út með ýmsum glaðningum.







