Assange hefur verið furðuleg fígúra í heimsmálunum undanfarin ár. Hann hefst enn við í sendiráði Ekvador í London til að komast undan handtökuskipun breskra yfirvalda fyrir að gefa sig ekki fram við dómstól árið 2012. Hann hefur við og við gefið frá sér yfirlýsingar sem virðast benda til þess að hann sé hallur undir Donald Trump Bandaríkjaforseta og rússnesk stjórnvöld.
Bandaríska leyniþjónustan segir að uppljóstrunarvefur hans, Wikileaks, hafi tekið við stolnum gögnum úr póstþjónum Demókrataflokksins í Bandaríkjunum sem rússneskir tölvuþrjótar eru sakaðir um að hafa komið brotist inn í.
Í röð tísta á mánudag, daginn sem almyrkvi var sjáanlegur frá stórum hluta Bandaríkjanna, ákvað Assange að sigla gegn straumi viðurkenndra staðreynda og fullyrti að því fylgdi engin hætta að horfa á almyrkvann. Það væri aðeins fyrir og eftir að tunglið hyldi algerlega sólina sem hætta væri á ferðum.
Sérfræðingar og fjölmiðlar höfðu brýnt fyrir almenningi að horfa ekki á sólmyrkvann með berum augum og mældu með sérstökum sólmyrkvagleraugum sem sía út skaðlega sólargeisla. Á vefsíðu NASA kom fram að jafnvel þó að tunglið skyggði á 99% sólarinnar væri hætta á verulegum augnskemmdum horfði fólk á hana með berum augum.

Fullyrðing Assange er í sjálfu sér ekki röng en hún hunsar lykilþætti sem varða öryggi þess að fylgja með sólmyrkvum.
Rétt er að tunglið lokar á sterka geisla sólarinnar einmitt á meðan almyrkvinn er í hámarki. Nær ómögulegt er hins vegar að segja með fullri vissu nákvæmlega hversu lengi það augnablik stendur yfir á hverjum stað. Þar sem almyrkvinn stóð sem lengst yfir varði hann í um tvær og hálfa mínútu.
Eins og vefsíðan Gizmodo bendir einnig á sér afgerandi meirihluti fólks heldur aldrei fullan almyrkva heldur aðeins deildarmyrkva þar sem tunglið skyggir aðeins á hluta skífu sólarinnar. Það var tilfellið víðsvegar um Bandaríkin utan slóðar almyrkvans sjálfs á mánudag. Þannig voru aðeins 72% sólarinnar hulin í New York til dæmis.
Asssange virtist hins vegar sannfærður um að verið væri að hafa bandarískan almenning að leiksoppum.
„Þú horfir í burtu þegar þú sérð hann enda. Augun færa sig líka til að verja sig. Móðursýkinni virðist líka viðhaldið af hagnaði gleraugnafyrirtækja,“ tísti Assange.
You look away when you see it ending. Eyes also move to protect themselves. The hysteria seems to be sustained by glasses company profits.
— Julian Assange (@JulianAssange) August 21, 2017