Sjö vikur frá síðasta deildarsigri Stjörnukvenna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2017 07:15 Katrín Ásbjörnsdóttir er fyrirliði Stjörnunnar. Vísir/Ernir
Íslandsmeistarar Stjörnunnar hafa ekki unnið leik í Pepsi-deild kvenna í fótbolta í 47 daga og það verður að breytast í kvöld ætli Garðabæjarliðið að ógna Þór/KA eitthvað í baráttunni um titilinn í ár. Jafntefli á móti Grindavík og ÍBV á heimavelli í síðustu tveimur leikjum hafa eyðilagt mikið fyrir titilvörn Stjörnuliðsins og um leið gefið norðankonum meira andrými á toppnum. Það kom sér vel fyrir Þór/KA liðið sem komst upp með það að gera jafntefli á heimavelli á móti Fylki í fyrsta leik eftir EM. Þór/KA er með fimm stiga forskot á Stjörnuna fyrir leiki kvöldsins og á einnig leik til góða. Þór/KA heimsækir botnlið Hauka á sama tíma og Stjarnan fær Valskonur í heimsókn. Ef það hefur einhvern tíma verið leikur upp á líf og dauða fyrir Íslandsmeistaravonir Stjörnunnar í ár þá er það leikurinn í kvöld sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 19.15. Stjarnan vann síðast leik í Pepsi-deildinni 1. júlí síðastliðinn. Valsliðið er þegar svo gott sem búið að binda enda á meistaravonir Blika með 2-0 sigri í fyrsta leik liðanna eftir EM. Valskonur mæta líka í hefndarhug eftir 1-0 tap í framlengdum undanúrslitaleik liðanna í Borgunarbikarnum fyrir aðeins fjórum dögum en sigurmarkið kom á 117. mínútu leiksins. Eftir leikinn í kvöld eru aðeins tólf stig eftir í pottinum fyrir Stjörnuna og fari allt á versta veg þá gæti Þór/KA verið komið með átta stiga forskot á Garðbæinga. Framundan er bæði Evrópukeppni og bikarúrslit en ætli Stjörnuliðið að vera með í titilbaráttunni þarf liðið nauðsynlega sigur í Garðabænum í kvöld.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira