KR-ingar drógust gegn belgísku liði og Búlgarar bíða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2017 10:30 Brynjar Þór Björnsson og félagar eru á leiðinni til Belgíu. Vísir/Andri Marinó
Íslands- og bikarmeistarar KR þurfa ekki að fara mjög langt í Evrópukeppninni en dregið var í fyrstu umferð undankeppni FIBA Europe Cup í höfuðstöðvum FIBA í München. KR-liðið lenti á móti belgíska félaginu Belfius Mons-Hainaut og mun fyrri leikurinn fara fram á heimavelli KR miðvikudaginn 20. september. Seinni leikurinn er síðan út í Belgíu viku síðar. KR hafði heppnina með sér hvað varðar lengd ferðalagsins en hin liðin sem komu til greina voru mun lengra í burtu. KR gat líka lent á móti liðum frá Búlgaríu, Tékklandi, Ungverjalandi, Makedóníu, Póllandi, Rúmeníu, Tyrklandi og Úkraínu. Belfius Mons-Hainaut endaði í sjöunda sæti í belgísku deildinni á síðustu leiktíð og tapaði síðan 2-0 í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Liðið vann 18 leiki og tapaði 18 leikjum í deildarkeppninni en liðin í 5. til 8. sæti voru öll með jafnmörg stig. Belfius Mons-Hainaut hefur aldrei orðið belgískur meistari en fjórum sinnum endaði í öðru sæti, síðast árið 2015. Takist KR-ingum að slá út Belgana þá mætir liðið BC Beroe frá Búlgaríu í annarri umferð undankeppninnar. Sigurvegarinn úr þeim leikjum kemst síðan í riðlakeppnina. BC Beroe varð búlgarskur meistari í fyrsta sinn á síðasta tímabili. KR er fyrsta íslenska körfuboltaliðið í níu ár sem tekur þátt í Evrópukeppni.
Dominos-deild karla Körfubolti Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira