Vill að bandalagsríki einbeiti sér að ISIS Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. júlí 2017 06:00 Bandaríkin vilja að uppreisnarmenn einbeiti sér að ISIS. Nordicphotos/AFP
Bandaríkin, sem eru í forsvari fyrir hernaðarbandalagi hliðhollu uppreisnarmönnum í Sýrlandi, vilja að bandalagsríki einbeiti sér alfarið að baráttunni gegn hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki. Það þýðir að hernaðarbandalagið myndi ekki beita sér gegn hersveitum ríkisstjórnar Bashars al-Assad. Talsmaður varnarmálaráðuneytisins sagði við blaðamenn í gær að markmið Bandaríkjanna í Sýrlandi og Írak væri að berjast við ISIS, eingöngu ISIS. Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti tók ákvörðun um að leynilegt verkefni CIA, sem gekk út á að sjá uppreisnarmönnum í Sýrlandi fyrir birgðum og vopnum, yrði stöðvað. Birtust fréttir af ákvörðuninni fyrir rúmri viku. „Við höfum ítrekað að markmið okkar er að berjast við ISIS og eingöngu ISIS. Við höfum beðið aðra aðila að bandalaginu um að gera slíkt hið sama,“ sagði Ryan Dillon, talsmaður hernaðarbandalagsins, í gær. CNN greindi frá því að hópur uppreisnarmanna, Shohada al-Quartyan, hafi yfirgefið herstöð bandalagsins í suðurhluta Sýrlands á dögunum eftir að hafa verið beðinn um að einbeita sér að ISIS en ekki baráttunni við Sýrlandsher.
Birtist í Fréttablaðinu Sýrland Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Sjá meira