Sjáðu sigurmark Söndru í Kópavoginum og öll hin úr 11. umferðinni | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. júlí 2017 07:15
Fjórir leikir fóru fram í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna um helgina. Alls voru 16 mörk skoruð í þessum fjórum leikjum, eða fjögur mörk að meðaltali í leik. Þetta voru síðustu leikirnir fyrir EM-fríið sem Pepsi-deildin er nú farin í. Keppni hefst aftur 9. ágúst næstkomandi. Þór/KA vann gríðarlega mikilvægan sigur á Breiðabliki, 1-2, á Kópavogsvelli í toppbaráttunni. Sandra Stephany Mayor Gutierrez sýndi enn og aftur hversu frábær leikmaður hún er. Mexíkóska landsliðskonan skoraði sigurmark Þórs/KA með skoti beint úr aukaspyrnu þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Hún er komin með níu mörk í deildinni. Þór/KA situr á toppi deildarinnar með 31 stig, sex stigum á undan Stjörnunni og ÍBV og sjö stigum á undan Breiðabliki. Agla María Albertsdóttir skoraði þrennu þegar Stjarnan rúllaði yfir KR, 1-5. Stjarnan hefur unnið þrjá leiki í röð með markatölunni 11-1. KR hefur hins vegar tapað þremur leikjum í röð með markatölunni 1-12. ÍBV hélt sigurgöngu sinni áfram þegar liðið lagði Val að velli, 3-1, á Hásteinsvelli. Þetta var fimmti deildarsigur ÍBV í röð en liðið hefur haldið hreinu í fjórum þeirra. Cloé Lacasse skoraði tvö mörk fyrir ÍBV en hún er markahæst í deildinni með 11 mörk. Þetta var hins vegar fyrsta tap Vals síðan 16. maí. Liðið er áfram í 5. sæti deildarinnar. Grindavík fór langt með að bjarga sér frá falli með 1-2 útisigri á Haukum. Grindvíkingar hafa unnið tvo leiki í röð og eru komnar átta stigum frá fallsæti þegar sjö umferðum er ólokið. Haukar sitja hins vegar sem fastast á botni deildarinnar með aðeins eitt stig. Mörkin 16 úr 11. umferð Pepsi-deildar kvenna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira