MH17: Grunaðir verða sóttir til saka í Hollandi Atli Ísleifsson skrifar 5. júlí 2017 10:10 Allir 298 um borð í vélinni létu lífið þegar hún var skotin niður. Vísir/AFP
Þeir sem grunaðir eru um að hafa skotið niður MH17, vél Malaysia Airlines, yfir austurhluta Úkraínu árið 2014 verða sóttir til saka fyrir hollenskum dómstólum. Hollenska utanríkisráðuneytið staðfesti þetta í morgun, en lagði áherslu á að áfram verði stefnt að alþjóðlegri samvinnu í málinu. Nöfn yfir grunaða hafa enn ekki verið gerð opinber. Hollendingar sóttust eftir að sérstökum alþjóðlegum dómstól yrði komið á fót til að sækja grunaða til saka, en rússnesk stjórnvöld lögðust gegn slíku árið 2015. Allir 298 um borð í vélinni létu lífið þegar vélinni var grandað. Fólkið um borð var samtals frá sautján ríkjum, en flestir, eða 196, voru frá Hollandi. Árið 2015 leiddi rannsókn hollenskra yfirvalda í ljós að rússneskt Buk-flugskeyti hafi grandað vélinni og í september í fyrra greindu rannsakendur frá því að skeytinu hafi verið skotið á loft frá landsvæði sem var undir yfirráðum aðskilnaðarsinna á bandi Rússlandsstjórnar. Boeing 777-vélin var á leið frá Amsterdam til malasísku höfuðborgarinnar Kuala Lumpur þann 17. júlí 2014 þegar hún var skotin niður.
MH17 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira