Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli í vesturbænum þar sem KR var miklu betra liðið en í dag tókst lærisveinum Willums Þórs Þórssonar að nýta færin og koma sér örugglega áfram.
Markalaust var í hálfleik en Pálmi Rafn Pálmason kom KR yfir á 51. mínútu og danski framherjinn Tobias Thomsen gulltryggði sigurinn í leiknum og í einvíginu með öðru marki gestanna á 83. mínútu.
KR mætir næst ísraelska stórliðinu Maccabi Tel Aviv en með því leikur íslenski landsliðsframherjinn Viðar Örn Kjartansson sem var markakóngur í ísraelsku deildinni á síðustu leiktíð.
Fyrri leikurinn fer fram í Ísrael 13. júlí en sá síðari á Alvogen-vellinum 20. júlí.
FT: SJK 0-2 KR
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) July 6, 2017
KR fer til Ísrael og mætir Maccabi Tel Aviv
Ertu klár @Vidarkjartans ?#AllirSemEinn