Tvö 2002 módel skoruðu í öruggum Eyjasigri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júní 2017 19:56 Eyjakonur eru á frábærri siglingu. vísir/hanna
ÍBV vann sinn fimmta sigur í síðustu sex deildarleikjum þegar liðið lagði botnlið Hauka að velli, 3-0, á Hásteinsvelli í kvöld. ÍBV hefur haldið hreinu í öllum þessum fimm sigurleikjum og skorað samtals 14 mörk. Á meðan ÍBV gengur allt í haginn gengur hvorki né rekur hjá Haukum sem eru aðeins með eitt stig eftir fyrstu níu umferðirnar og sitja á botni Pepsi-deildarinnar. Cloé Lacasse, sem skoraði fernu í 0-5 sigri á Fylki í síðustu umferð, kom Eyjakonum á bragðið á 14. mínútu. Hún fylgdi þá eftir skoti Clöru Sigurðardóttur sem Tori Ornela, markvörður Hauka, varði. Á 28. mínútu snerist dæmið við. Cloé lék þá á Tori í markinu og renndi boltanum á Clöru sem skoraði. Þetta var fyrsta mark þessarar 15 ára stelpu í efstu deild. Á 89. mínútu skoraði varamaðurinn Linda Björk Brynjarsdóttir svo þriðja mark ÍBV eftir sendingu Rutar Kristjánsdóttur og 3-0 sigur ÍBV staðreynd. Linda Björk er fædd árið 2002, líkt og Clara, og því má segja að grunnskólabörnin hafi látið til sín taka í leiknum í kvöld. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Leik lokið: FH - Þór/KA 1-0 | Varamaðurinn tryggði Þór/KA níunda sigurinn í röð Karen María Sigurgeirsdóttir sá til þess að Þór/KA er með fullt hús stiga eftir fyrri umferðina í Pepsi-deild kvenna. 20. júní 2017 20:45 Mest lesið Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Enski boltinn Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Körfubolti Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti Stórt tap á Ítalíu Körfubolti Fleiri fréttir „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ KSÍ sektar Árbæ um 250 þúsund krónur ÍR aftur á toppinn Hin efnilega Rebekka Sif til Nordsjælland frá Gróttu Sunna Rún til liðs við Íslandsmeistarana Uppbótartíminn: Hvernig lið er Stjarnan? „Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ Njarðvík á toppinn Uppgjörið: Valur - FH 2-3 | Hafnfirðingar í úrslit í fyrsta sinn FH konur ætla að skrifa söguna í kvöld KR missir sinn efnilegasta mann „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Ekroth skúrkurinn í Stúkunni: „Hann grípur um andlitið, hann veit af þessu“ Sjáðu markið sem var stolið, rauða spjaldið og alla markaveislu Stjörnunnar Sjá meira
Leik lokið: FH - Þór/KA 1-0 | Varamaðurinn tryggði Þór/KA níunda sigurinn í röð Karen María Sigurgeirsdóttir sá til þess að Þór/KA er með fullt hús stiga eftir fyrri umferðina í Pepsi-deild kvenna. 20. júní 2017 20:45