Lauflétt hjá Blikum | Mexíkósk sveifla hjá Val Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júní 2017 21:14 Fanndís skoraði tvö mörk gegn Grindavík. vísir/eyþór
Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í kvöld.Þór/KA er með fullt hús stiga á toppi deildarinnar en Norðanstúlkur unnu 0-1 sigur á FH í Kaplakrika. Þór/KA er með 27 stig, sex stigum á undan Breiðabliki sem rúllaði yfir Grindavík, 0-5. Svava Rós Guðmundsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir skoruðu báðar tvö mörk og Berglind Björg Þorvaldsdóttir var einnig á skotskónum. Staðan var 0-3 í hálfleik og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Blika, gat leyft sér að taka landsliðskonurnar Fanndísi, Ingibjörgu Sigurðardóttur og Rakel Hönnudóttir út af um miðjan seinni hálfleik. Grindavík hefur nú tapað sex leikjum í röð með markatölunni 3-26. Liðið er samt ennþá í 8. sæti, tveimur stigum frá fallsæti. Valur vann fimmta leikinn í röð þegar liðið rústaði KR með fimm mörkum gegn engu. Það var mexíkósk sveifla hjá Val í kvöld en þær Anisa Raquel Guajardo og Ariana Caldero skoruðu tvö mörk hvor. Vesna Elísa Smiljkovic komst einnig á blað. Valur er í 5. sæti deildarinnar með 18 stig. KR er í því sjöunda með sex stig. Eftir tvo tapleiki í röð vann Stjarnan 1-0 sigur á Fylki. Agla María Albertsdóttir skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu. Harpa Þorsteinsdóttir var í byrjunarliði Stjörnunnar í fyrsta sinn á tímabilinu og lék fyrstu 74 mínúturnar. Stjarnan er í 3. sæti deildarinnar með 19 stig. Fylkir, sem hefur ekki unnið síðan í 1. umferðinni, er í níunda og næstneðsta sætinu með fjögur stig.Þá vann ÍBV 3-0 sigur á botnliði Hauka. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Þór/KA 0-1 | Varamaðurinn tryggði Þór/KA níunda sigurinn í röð | Sjáðu markið Karen María Sigurgeirsdóttir sá til þess að Þór/KA er með fullt hús stiga eftir fyrri umferðina í Pepsi-deild kvenna. 20. júní 2017 20:45 Tvö 2002 módel skoruðu í öruggum Eyjasigri ÍBV vann sinn fimmta sigur í síðustu sex deildarleikjum þegar liðið lagði botnlið Hauka að velli, 3-0, á Hásteinsvelli í kvöld. 20. júní 2017 19:56 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Þór/KA 0-1 | Varamaðurinn tryggði Þór/KA níunda sigurinn í röð | Sjáðu markið Karen María Sigurgeirsdóttir sá til þess að Þór/KA er með fullt hús stiga eftir fyrri umferðina í Pepsi-deild kvenna. 20. júní 2017 20:45
Tvö 2002 módel skoruðu í öruggum Eyjasigri ÍBV vann sinn fimmta sigur í síðustu sex deildarleikjum þegar liðið lagði botnlið Hauka að velli, 3-0, á Hásteinsvelli í kvöld. 20. júní 2017 19:56