Trump segist vera til rannsóknar fyrir að hafa rekið Comey Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. júní 2017 17:51 Donald Trump. vísir/getty
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, fór á Twitter fyrr í dag og staðfesti það að hann væri til rannsóknar vegna brottvikningar James Comey, fyrrverandi forstjóra Bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, úr embætti. „Maðurinn sem sagði mér að reka forstjóra FBI er núna að rannsaka mig fyrir að hafa rekið forstjórann! Nornaveiðar,“ segir Trump í tísti sínu. Greint var frá því fyrr í vikunni að sérstakur saksóknari, Robert Mueller III, hefði hafið rannsókn á því hvort að Trump hefði mögulega hindrað framgang réttvísinnar. Ekki kom þá strax fram hvernig Trump átti mögulega að hafa brotið af sér en miðað við tíst forsetans nú snýst rannsóknin um brottrekstur Comey. Að því er fram kemur á vef CNN er maðurinn sem Trump er að vísa til í tístinu Rod Rosenstein, aðstoðardómsmálaráðherra, en hann mælti með því í minnisblaði til forsetans að reka Comey. Það var síðan Rosenstein sem skipaði Mueller sem sérstakan saksóknara vegna rannsóknar á meintum afskiptum Rússa af forsetakosningunum í fyrra og meintum samskiptum einstaklinga úr kosningateymi Trump við Rússa.
Bandaríkin Donald Trump Rússarannsóknin Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira