Sandra María komin í EM-form | Cloé kafsigldi Árbæinga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júní 2017 19:59 Sandra María skoraði þrennu og lagði upp eitt mark til viðbótar. vísir/stefán
Sandra María Jessen og Cloé Lacasse fóru hamförum þegar Þór/KA og ÍBV unnu stórsigra í fyrstu leikjum kvöldsins í Pepsi-deild kvenna. Sandra María er greinilega staðráðinn í að komast í íslenska landsliðshópinn sem fer á EM sem hefst eftir nákvæmlega mánuð. Sandra María skoraði þrennu í 5-0 sigri Þórs/KA á Grindavík á Þórsvelli í kvöld. Norðanstúlkur hafa unnið alla átta leiki sína í Pepsi-deildinni með markatölunni 21-3. Grindavík hefur hins vegar tapað fimm leikjum í röð með markatölunni 3-21. Sandra María byrjaði á því að leggja upp mark fyrir nöfnu sína, Söndru Stephany Mayor Gutierrez, á 11. mínútu. Þremur mínútum síðar skoraði Sandra María sjálf og hún bætti svo sínu öðru marki við tveimur mínútum fyrir hálfleik. Á 84. mínútu fullkomnaði Sandra María þrennuna þegar hún skoraði eftir sendingu frá borgarstjóranum Mayor. Mínútu fyrir leikslok varð Linda Eshun svo fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark og lokatölur því 5-0, Þór/KA í vil. ÍBV vann Fylki með sömu markatölu í Árbænum. Fylkiskonur réðu nákvæmlega ekki neitt við Cloé Lacasse sem skoraði fernu í leiknum. Kristín Erna Sigurlásdóttir var einnig á skotskónum í öðrum leiknum í röð. Cloé og Kristín Erna hafa borið sóknarleik ÍBV uppi í sumar en þær hafa samtals skorað 11 af 15 mörkum liðsins í Pepsi-deildinni. Eyjakonur, sem hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum, eru í 4. sæti deildarinnar. Fylkir er hins vegar áfram með fjögur stig í níunda og næstneðsta sætinu. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira