ISIS tapar táknrænu lykilvígi sínu í Írak Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. júní 2017 19:12 Vígamenn ISIS eiga við ofurefli að etja. Vísir/AFP
Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið hafa flúið bæinn Baaj í norðvesturhluta Írak en bærinn hefur verið álitinn eitt af lykilvígum samtakanna. Guardian greinir frá. Síðustu vígamenn samtakanna yfirgáfu bæinn í gær og gáfu írakskar öryggissveitir út yfirlýsingu samdægurs um að „tekist hefði að frelsa bæinn“ og að fáni Írak hefði verið dreginn að húni yfir helstu stjórnarbyggingum þar. Sigurinn er að mestu leyti talinn táknrænn en samtökin tapa sífellt meira landssvæði og hafa þau meðal annars tapað yfirráðum í borgunum Fallula, Tikrit, Ramadi og stærstum hluta Mosul borgar. Svo virðist sem endalok samtakanna í Írak séu í nánd.Sjá einnig: Komið að endalokum kalífadæmisins Talið er að örfáir skæruliðar samtakanna séu enn eftir í vesturhluta Mosul borgar og þá ráða samtökin enn yfir landamærabænum Bukamal. Eru það einu staðirnir í þéttbýli sem samtökin ráða enn yfir. Aukin áhersla verður lögð á að berjast gegn samtökunum í Sýrlandi eftir því sem nær dregur endalokum þeirra í Írak. Írakskar öryggissveitir hafa þá lagt áherslu á að hafa hendur í hári Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga samtakanna en talið er að hann megi finna í grennd við Baaj.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira