Einn árásarmannanna í London birtist í heimildarmynd um öfgamenn Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. júní 2017 20:10 Khuram Butt birtist í heimildarmyndinni The Jihadist Next Door. Skjáskot/Sky News
Einn árásarmannanna, sem varð 7 manns að bana á London Bridge á laugardagskvöld, birtist í heimildarmynd bresku sjónvarpsstöðvarinnar Channel 4 um múslima er aðhylltust öfgastefnu. Khuram Butt sést bregða fyrir í heimildarmyndinni The Jihadis Next Door, eða Öfgamennirnir í næsta húsi, en myndin fylgir eftir mönnum er breiddu út öfgastefnu innan Íslam í Bretlandi. Þá voru tengsl mannanna í heimildarmyndinni við þekktan öfgaprédikara, Anjem Choudary, sérstaklega rannsökuð. Í myndbrotinu sést lögregla hafa afskipti af Butt, sem einnig var þekktur undir nafninu Abu Zaitun, og félögum hans.Í frétt Sky News fréttastofunnar segir að Butt hafi komið til Bretlands sem barn í fylgd pakistanskra foreldra sinna er fjölskyldan sótti um hæli. Hann hafði verið undir eftirliti lögreglu í Bretlandi. Nágrannakona Butt í Barking í austurhluta London segir hann iðulega hafa starað reiðilega á konur í hverfinu þegar þær hjóluðu fram hjá honum. Rachid Redouane, hinn árásarmaðurinn sem hefur verið nafngreindur, hefur ekki komið við sögu lögreglu áður. Talið er að hann hafi búið í Dublin, höfuðborg Írlands, á árunum 2014-2016 og þá er hann einnig sagður hafa átt skoska eiginkonu. 7 létust og 48 særðust í hryðjuverkaárásinni sem framin var á London Bridge og við Borough Market í London á laugardagskvöldið. Þrír árásarmenn, tveir þeirra Butt og Redouane, voru skotnir til bana af lögreglu.
Tengdar fréttir Árásarmennirnir í London nafngreindir Lögregluyfirvöld í London hafa gefið út nöfn tveggja af þremur árásarmönnum sem skotnir voru til bana í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar á London Bridge á laugardagskvöld. 5. júní 2017 17:20 Árásin í London: May gagnrýnd fyrir niðurskurð til löggæslumála Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið gagnrýnd harðlega í dag fyrir stefnu Íhaldsflokksins í löggæslumálum. 5. júní 2017 12:02 Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira
Árásarmennirnir í London nafngreindir Lögregluyfirvöld í London hafa gefið út nöfn tveggja af þremur árásarmönnum sem skotnir voru til bana í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar á London Bridge á laugardagskvöld. 5. júní 2017 17:20
Árásin í London: May gagnrýnd fyrir niðurskurð til löggæslumála Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið gagnrýnd harðlega í dag fyrir stefnu Íhaldsflokksins í löggæslumálum. 5. júní 2017 12:02