Lögregla í Manchester segir rannsókninni miða vel áfram Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. maí 2017 19:28 Öryggisgæsla hefur verið hert verulega í Manchester í kjölfar árásarinnar. Vísir/afp
Lögregluyfirvöld í Manchester segja að „mikilvægar handtökur“ hafi verið gerðar í tengslum við árásina í Manchester og að söfnun sönnunargagna hafi einnig skilað miklu. BBC greinir frá. Aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar í Manchester, Mark Rowley, segir lögreglu hafa „haft hendur í hári stórs hluta“ af hryðjuverkanetinu sem árásarmaðurinn, Salman Abedi, er talinn hafa verið meðlimur í. Þá hefur farið fram endurskoðun á öryggisgæslu á meira en þrettánhundruð viðburðum í Bretlandi síðustu daga. Viðbúnaðarstig verður þó ekki lækkað í bráð. Leit lögreglu í tengslum við árásina stendur enn yfir á tólf stöðum en lögregluþjónar á vettvangi hafa safnað fjölmörgum hlutum, sem mögulegt er að tengist sprengjugerð, til skoðunar vegna málsins. Átta eru nú í haldi lögreglu en nú síðast í nótt var maður handtekinn í Manchester. Tíu hafa samtals verið handteknir í tengslum við árásina en tveimur hefur verið sleppt. Salman Abedi sprengdi sjálfan sig í loft upp við Manchester Arena síðastliðið mánudagskvöld er söngkonan Ariana Grande hélt þar tónleika. Grande tilkynnti nú fyrir skömmu að hún hygðist snúa fljótlega aftur til Manchester og halda styrktartónleika fyrir fjölskyldur þeirra sem létust í árásinni.
Hryðjuverk í Manchester Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira