Rodriguez klár í brottför til Manchester? Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. maí 2017 20:30 James tekur í spaðann á Zidane er hann gengur af velli í sínum síðasta leik á Bernabéu. Það þykir fullvíst að hann fari frá félaginu í sumar. vísir/epa
Það duldist engum að Kólumbíumaðurinn James Rodriguez vissi vel að hann var að spila sinn síðasta leik fyrir Real Madrid á heimavelli í gær. Enda kvaddi hann stuðningsmenn er hann var tekinn af velli. Rodriguez snéri sér í tvo hringi til þess að klappa fyrir fólkinu. Líklega erfið stund fyrir leikmanninn enda draumur hans hjá Real Madrid að enda. Alls tóku 45 þúsund manns á móti honum er Real Madrid samdi við hann árið 2014. Hann var þá nýbúinn að klára HM þar sem hann var markahæstur. Allir áttu von á því þá að hann yrði næsti Ronaldo og myndi keppa um Gullboltann á komandi árum. Það hefur ekki gengið eftir. Eftir gott fyrsta tímabil hefur gefið á bátinn og Rodriguez verið í aukahlutverki. Átrúnaðargoð hans, Zinedine Zidane, hefur verið með hann á bekknum og nú er kominn tími til að kveðja. Kólumbískir fjölmiðlar fullyrða að Rodriguez sé þegar búinn að semja við Man. Utd en hann er með sama umboðsmann og stjóri Man. Utd, Jose Mourinho. Hæg heimatökin þar. Gangi þessi kaup eftir þá mun James spila með Man. Utd gegn Real Madrid þann 23. júlí næstkomandi er undirbúningstímabilið verður komið á fullt.
Fótbolti Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Sjá meira