Dagur Dan glímdi við Messi í nótt Aron Guðmundsson skrifar 21. september 2026 07:39 Dagur Dan í baráttunni við Lionel Messi í nótt Vísir/Getty Dagur Dan Þórhallsson glímdi við stærðarinnar verkefni í MLS-deildinni í nótt þegar lið hans San Diego heimsótti stjörnum prýtt lið Inter Miami með Lionel Messi í fararbroddi.
Dagur var í byrjunarliði San Diego í leik næturinnar og það voru gestirnir sem byrjuðu betur því strax á 12. mínútu kom Anders Dreyer þeim yfir. Aðeins rúmum tólf mínútum síðar stimplaði Lionel Messi sig hins vegar inn er hann jafnaði metin fyrir Inter Miami og stóðu leikar 1-1 í hálfleik. Þegar komið var fram á 74. mínútu kom Luis Suarez sínum mönnum í Inter Miami yfir og stefndi allt í að heimamenn myndu sigla heim 2-1 endurkomusigri. En á 82. mínútu jafnaði Anders Dreyer metin fyrir San Diego með öðru marki sínu og liðsins. San Diego fékk síðan gullið tækifæri til þess að stela sigrinum á lokasekúndunum þegar liðið gat sótt hratt í bakið á Inter Miami sem hafði sett allt sitt lið fram í sókn í leit að sigurmarki. Boltinn barst til Kieran Sargeant sem, einn á móti markmanni, kom boltanum ekki í netið fram hjá Dayne St. Clair í marki Inter Miami. Lokatölur 2-2 jafntefli. Dagur Dan var tekinn af velli á 90. mínútu. San Diego er sem stendur í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni MLS-deildarinnar í gegnum vesturdeild hennar. Liðið er með 31 stig í 10. sæti, aðeins stigi frá sæti í úrslitakeppninni þegar 26 umferðir hafa verið leiknar. Inter Miami er í 3. sæti austurhluta deildarinnar með 46 stig.
Bandaríski fótboltinn Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Sjá meira