Til skoðunar að lengja opnunartíma tippsins Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. maí 2017 12:15 Frá framkvæmdunum við Miklubraut. vísir/anton brink
Það skýrist að öllum líkindum í dag hvort að opnunartími tippsins í Bolaöldum verði lengdur en fjallað hefur verið um það að verktakinn sem vinnur að framkvæmdunum á Miklubraut sé bundinn af opnunartíma tippsins þessa dagana þar sem hann þarf að komast í að losa sig við jarðveg. Tekið er á móti honum í tippnum. Magnús Ólason, forsvarsmaður tippsins, segir í samtali við Vísi að hann sé nú að skoða hvort ekki sé hægt að lengja opnunartímann en það kæmi ekki aðeins verktakanum á Miklubraut til góða heldur einnig öðrum verktökum sem eru í framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Magnúsar þarf hann nú að skoða það með starfsfólki sínu hvort hægt sé að lengja opnunartímann en hann segist sjá fram á það að geta allavega haft opið til klukkan 18 á virkum dögum í staðinn fyrir 17:30. Tippurinn lokar svo klukkan 16 á föstudögum og er einnig lokaður um helgar en hann opnar klukkan 8 virka daga. Björn Sigurðsson, eigandi og forstjóri Bjössa ehf., verktakafyrirtækisins sem vinnur að framkvæmdunum á Miklubraut segir að það muni um hvern hálftíma sem tippurinn er opinn lengur. „Það myndi þó muna mest fyrir okkur ef það væri opið á laugardögum og okkur skilst að það sé verið að skoða það hjá þeim hvort hægt sé að hafa opið þá,“ segir Björn í samtali við Vísi. Aðspurður hversu mikið er eftir af jarðvegsvinnu þeim megin Miklubrautar segir Björn að hann telji það vera í mesta lagi viku en þá farið í að malbika. Sams konar jarðvegsvinnu þarf síðan að fara í hinu megin á Miklubrautinni þegar framkvæmdir hefjast þar síðar í sumar.
Tengdar fréttir Verktakinn við Miklubraut bundinn af opnunartíma tippsins Björn Sigurðsson, eigandi og forstjóri Bjössa ehf., verktakafyrirtækisins sem vinnur að framkvæmdum við Miklubraut segir að hann sé bundinn af opnunartíma jarðvegstippsins í Bolöldu og geti því ekki unnið verkið hraðar. 16. maí 2017 12:24 Mestu gatnaframkvæmdir sögunnar í borginni í sumar Búast má við röskun á umferð víðar í borginni í sumar vegna gatnaframkvæmda. 11. maí 2017 20:00 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Fleiri fréttir Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Sjá meira
Verktakinn við Miklubraut bundinn af opnunartíma tippsins Björn Sigurðsson, eigandi og forstjóri Bjössa ehf., verktakafyrirtækisins sem vinnur að framkvæmdum við Miklubraut segir að hann sé bundinn af opnunartíma jarðvegstippsins í Bolöldu og geti því ekki unnið verkið hraðar. 16. maí 2017 12:24
Mestu gatnaframkvæmdir sögunnar í borginni í sumar Búast má við röskun á umferð víðar í borginni í sumar vegna gatnaframkvæmda. 11. maí 2017 20:00