Skoðun

Sofandi þing­menn

Björn B. Björnsson skrifar

Þingmenn og ráðherrar eru kjörnir til að gæta hagsmuna almennings, en virðast ekki alltaf vera vakandi fyrir þessu hlutverki sínu.

Mikil áform eru nú uppi um stóraukið fiskeldi við strendur Íslands. Ástæðan er að slíkur rekstur er mjög arðbær nú og framtíðarhorfur góðar.

Fiskeldi byggist á notkun og nýtingu sameiginlegra auðlinda okkar, en þrátt fyrir það eru engin áform um að greinin borgi fyrir þessa notkun, greiði auðlindagjald.



Fiskeldi í sjókvíum mengar umhverfi sitt. Úr kvíunum kemur skítur og fóður sem mengar og skemmir sjávarbotninn. Úr kvíunum leka líka lyf sem fiskunum eru gefin og veruleg hætta er á að laxar sem sleppa úr kvíunum mengi (og jafnvel útrými) villtum laxastofnum við Ísland. Þá verður mikil sjónmengun af kvíunum sem verða settar upp í mörgum fegurstu fjörðum landsins.



Það er því eðlileg krafa að þeir sem ætla að fá leyfi til að hagnast með þessum hætti á sameiginlegum auðlindum okkar greiði fyrir þessi not.

Þetta virðist hins vegar alveg hafa gleymst. Kannski vegna dugnaðar fyrirtækjanna við að koma ár sinni fyrir borð. Alla vega hafa þingmenn hér steinsofið á verðinum við að gæta hagsmuna þeirra sem eiga auðlindina sem til stendur að nýta og menga.



Ríkisútvarpið skýrði nýlega frá því að í Noregi væru sveitarfélög í auknum mæli afhuga fiskeldi og vildu ekki meira af slíku. Ástæðuna segja sveitarfélögin vera þá að fiskeldið skili litlu til samfélagsins þrátt fyrir mikinn gróða fiskeldisfyrirtækjanna. Sveitarfélögin fái litlar beinar tekjur og sum þeirra mjög litlar afleiddar tekjur.



Á Íslandi kostar rekstrar- og starfsleyfi til fiskeldis eina milljón króna. Í Noregi kostar slíkt leyfi 150 milljónir króna og þegar Norðmenn prófuðu að bjóða upp slík leyfi fyrir nokkrum árum fengust 840 milljónir fyrir dýrasta leyfið.



Væri ekki ráð að þingmenn vöknuðu af sínum þunga svefni og gerðu hér bragarbót? Auðlindagjald af fiskeldi gæti að hluta runnið til viðkomandi sveitarfélaga og að hluta í auðlindasjóðinn sem á að tryggja okkur fyrir áföllum í framtíðinni. Ekki mun af veita.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×