Besta byrjun FH-kvenna í fjóra áratugi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2017 07:30 FH-konur fagna hér einu af sjö mörkum FH-liðsins í sumar. vísir/anton
FH hefur unnið þrjá síðustu leiki sína í Pepsi-deild kvenna og er í þriðja sæti deildarinnar eftir fjóra leiki. Þetta er besta byrjun kvennaliðs FH í rúma fjóra áratugi. FH hefur aldrei fengið fleiri stig (9) í fyrstu fjórum leikjunum í efstu deild kvenna síðan þriggja stiga reglan var tekin upp 1984. FH-liðið byrjaði einnig vel í fyrra og var þá í fjórða sæti á sama tíma með tvo sigra og 7 stig. FH-stelpurnar eru hins vegar búnar að skora fimm fleiri mörk í sumar en á sama tíma í fyrra og vinna einum leik meira. Eftir naumt tap á móti Blikum á útivelli í fyrsta leik (0-1) hefur FH-liðið unnið Fylki (2-0), Hauka (3-0) og KR (2-1). Þetta eru þrjú neðstu lið deildarinnar og FH á því enn eftir að ná í stig á móti betri liðum deildarinnar. Það þarf að fara alla leið aftur til ársins 1976 til að finna tímabil í efstu deild þar sem kvennalið FH vann þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum. Þetta tímabil fyrir 41 ári er einmitt síðasta tímabilið þar sem FH-konur urðu Íslandsmeistarar. FH varð fjórum sinnum Íslandsmeistari á árunum 1972 til 1976. FH-liðið er skemmtileg blanda af ungum heimastúlkum og sterkum erlendum leikmönnum og á það sameiginlegt með toppliði Þórs/KA. Hin sextán ára gamla Guðný Árnadóttir er markahæst hjá FH-liðinu með tvö mörk en þau hafa bæði komið með skoti beint úr aukaspyrnu. Hin fimmtán ára gamla Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur síðan komið að fjórum mörkum FH-liðsins í sumar með því að skora (1), gefa stoðsendingu (1) eða eiga þátt í undirbúningi (2).
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira