Umhverfisstofnun þraut þolinmæðina gagnvart United Silicon Svavar Hávarðsson skrifar 21. apríl 2017 06:00 Ofn verksmiðjunnar verður ekki ræstur að nýju nema að höfðu samráði við Umhverfisstofnun. Ekki liggur fyrir hvenær það verður. Fréttablaðið/Eyþór
Mengunartoppar frá verksmiðju United Silicon í Helguvík eru raktir til þess að ekki tekst að halda ofni verksmiðjunnar gangandi af einhverjum ástæðum. Umhverfisstofnun (UST) virðist hafa gefið fyrirtækinu vissar tilslakanir byggðar á upplýsingum um að fyrirtækinu hafi tekist að fækka ofnstoppum, en fyrir páska þraut stofnunina þolinmæðina þar sem ekkert benti til að það væri rétt. Þetta kemur fram í bréfi UST til fyrirtækisins 12. apríl sem er frá hendi Kristínar Lindu Árnadóttur forstjóra og Sigrúnar Ágústsdóttur sviðsstjóra. Þar segir: „Að teknu tilliti til nýjustu upplýsinga er að mati stofnunarinnar vart hægt að fullyrða að ofnstoppum sé að fækka. Ábendingum um óþægindi hefur enn fjölgað og koma nú inn í verulegum mæli á skömmum tíma,“ segir í bréfinu þar sem vísað er til mikillar mengunar frá verksmiðjunni á nokkurra daga tímabili sem fjöldi íbúa í Reykjanesbæ kvartaði yfir til UST. Þær kvartanir voru rúmlega 80 talsins og bættust við 300 slíkar sem borist hafa UST síðan starfsemi verksmiðjunnar hófst fyrir fjórum mánuðum.Næsta ofnstopp Eins og Fréttablaðið greindi frá á miðvikudag tilkynnti UST United Silicon í bréfinu að ekki yrði komist hjá því að stöðva starfsemi verksmiðju fyrirtækisins í Helguvík – og miðað yrði við næsta ofnstopp sem myndi vara lengur en klukkustund. Forsendur þessara áforma voru að mögulegt væri að frá verksmiðjunni streymdi út í andrúmsloftið fjöldi efna sem gætu haft langtímaáhrif á heilsufar, en meðal þeirra eru ediksýra og maurasýra. Ekkert þeirra efna fellur undir mæliáætlun fyrirtækisins né umhverfisvöktun og því brýnt að greina um hvaða efni getur verið að ræða þannig að hægt sé að meta hættuna með meiri nákvæmni en gert hefur verið. Og ekki að ástæðulausu þar sem sóttvarnalæknir nefnir fimm efni sérstaklega sem gætu haft þau ertandi áhrif sem íbúar nærri verksmiðjunni lýsa – ediksýra, maurasýra, klórmetan/metýlklóríð, methyl mercaptan og ýmis aldehýð. Öll þessi efni eru mjög ertandi og hættuleg mönnum. Öll hafa þau, eða sambærileg efni, langtímaáhrif á heilsu fólks ef um mikla mengun er að ræða, þótt það sé í tiltölulega stuttan tíma, segir sóttvarnalæknir.Brunastækja Ekki kom til lokunar af hálfu UST þar sem stjórn United Silicon tók við boltanum og axlaði þá ábyrgð að hætta framleiðslu við næsta ofnstopp. Þess var ekki langt að bíða eftir að töluverður eldur kom upp í verksmiðjunni með þeim afleiðingum að framleiðslu var sjálfhætt. Eftir stendur að þrátt fyrir upplýsingar frá United Silicon um umbætur þá virðist mengunin frá verksmiðjunni hafa náð nýjum hæðum fyrir og um páskahátíðina; fólk hélst ekki við úti og frá verksmiðjunni stafaði „afgerandi ólykt“.„Í mörgum ábendingum kemur fram að lyktin sé mun verri en áður, megn brunastækja eða eiturefnalykt eru nefnd. Fram kemur að fólk finni fyrir sams konar einkennum og áður hefur verið lýst; sviða í augum, hálsi, ertingu í lungum, hausverk, ógleði og kláða í andliti. Fram kemur að fólk þurfi að nota astmalyf í auknum mæli. Einnig kemur fram að fólk opni ekki glugga, láti ekki börn sofa úti, hreyfing útivið sé útilokuð o.s.frv.,“ segir í bréfinu.Nýr ráðgjafi Til stóð að fulltrúar ráðgjafarfyrirtækisins Multiconsult tækju út rekstur United Silicon í vikunni. Áætlun gerði reyndar ráð fyrir því að úttektin yrði gerð daginn eftir að verksmiðjan lamaðist vegna eldsins, og tillögur ættu að liggja fyrir degi síðar. Tímasett umbótaáætlun eftir ráðleggingum Multiconsult og MATÍS átti að liggja fyrir í vikulok.Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri USTNæsta ofnstopp Eins og Fréttablaðið greindi frá á miðvikudag tilkynnti UST United Silicon í bréfinu að ekki yrði komist hjá því að stöðva starfsemi verksmiðju fyrirtækisins í Helguvík – og miðað yrði við næsta ofnstopp sem myndi vara lengur en klukkustund. Forsendur þessara áforma voru að mögulegt væri að frá verksmiðjunni streymdi út í andrúmsloftið fjöldi efna sem gætu haft langtímaáhrif á heilsufar, en meðal þeirra eru ediksýra og maurasýra. Ekkert þeirra efna fellur undir mæliáætlun fyrirtækisins né umhverfisvöktun og því brýnt að greina um hvaða efni getur verið að ræða þannig að hægt sé að meta hættuna með meiri nákvæmni en gert hefur verið. Og ekki að ástæðulausu þar sem sóttvarnalæknir nefnir fimm efni sérstaklega sem gætu haft þau ertandi áhrif sem íbúar nærri verksmiðjunni lýsa – ediksýra, maurasýra, klórmetan/metýlklóríð, methyl mercaptan og ýmis aldehýð. Öll þessi efni eru mjög ertandi og hættuleg mönnum. Öll hafa þau, eða sambærileg efni, langtímaáhrif á heilsu fólks ef um mikla mengun er að ræða, þótt það sé í tiltölulega stuttan tíma, segir sóttvarnalæknir.Brunastækja Ekki kom til lokunar af hálfu UST þar sem stjórn United Silicon tók við boltanum og axlaði þá ábyrgð að hætta framleiðslu við næsta ofnstopp. Þess var ekki langt að bíða eftir að töluverður eldur kom upp í verksmiðjunni með þeim afleiðingum að framleiðslu var sjálfhætt. Eftir stendur að þrátt fyrir upplýsingar frá United Silicon um umbætur þá virðist mengunin frá verksmiðjunni hafa náð nýjum hæðum fyrir og um páskahátíðina; fólk hélst ekki við úti og frá verksmiðjunni stafaði „afgerandi ólykt“.„Í mörgum ábendingum kemur fram að lyktin sé mun verri en áður, megn brunastækja eða eiturefnalykt eru nefnd. Fram kemur að fólk finni fyrir sams konar einkennum og áður hefur verið lýst; sviða í augum, hálsi, ertingu í lungum, hausverk, ógleði og kláða í andliti. Fram kemur að fólk þurfi að nota astmalyf í auknum mæli. Einnig kemur fram að fólk opni ekki glugga, láti ekki börn sofa úti, hreyfing útivið sé útilokuð o.s.frv.,“ segir í bréfinu.Nýr ráðgjafi Til stóð að fulltrúar ráðgjafarfyrirtækisins Multiconsult tækju út rekstur United Silicon í vikunni. Áætlun gerði reyndar ráð fyrir því að úttektin yrði gerð daginn eftir að verksmiðjan lamaðist vegna eldsins, og tillögur ættu að liggja fyrir degi síðar. Tímasett umbótaáætlun eftir ráðleggingum Multiconsult og MATÍS átti að liggja fyrir í vikulok.Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá USTHugsanleg mengunarefni frá United SiliconEdikssýra Lyktarmengun, erting í slímhúð (augum og öndunarfærum, þ.m.t. astmalík einkenni) koma fram við tiltölulega lága þéttni sem er ekki talin hættuleg en hættumörk eru ekki vel skilgreind. Meiri þéttni fylgir meiri erting.Maurasýra Lyktarmengun getur komið fram við nokkuð háa þéttni miðað við vinnuverndarmörk, hættumörk ekki vel skilgreind. Erting í slímhúð og hósti þekkt áhrif. Einkenni geta verið verri ef edikssýra og maurasýra blandast.Klórmetan/metýlklóríð Mjög ertandi ef blandast vatni, t.d. í slímhúð augna og loftvega, brotnar niður í saltsýru og metanól. Þegar það hitnar myndast klórgas. Betri skilgreiningar til fyrir bráðahættumörk en fyrir efnin hér að ofan. Hugsanlega hættulegt í styrk sem er undir lyktarmörkum, yfirleitt ekki talið lykta sérlega illa.Methyl mercaptan Mjög vond lykt, líkist soðnu káli, finnst þótt styrkur sé mjög lágur. Mjög ertandi fyrir slímhúð í tiltölulega lágum styrk. Ágætlega skilgreind hættumörk til. Ýmis aldehýð Geta verið ertandi og haft óþægilega lykt.heimild: Sóttvarnalæknir (bréf UST til United Silicon 12. apríl 2017)
Birtist í Fréttablaðinu United Silicon Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Sjá meira