Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - KR 79-66 | Grindvíkingar náðu fram oddaleik Stefán Árni Pálsson skrifar 27. apríl 2017 21:45 Grindvíkingar fagna í leikslok. vísir/andri marinó
Grindvíkingar tryggðu sér oddaleik þegar liðið vann stórkostlegan sigur á KR, 79-66, í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Dominos-deild karla. Grindvíkingar voru stórkostlegir í kvöld og hefur sjaldan sést eins mikil barátta frá einu liði í vetur. KR-liðið var í raun hræðilegt og þarf að laga allt í sínum leik fyrir oddaleikinn á sunnudaginn. Lewis Clinch Jr. skoraði 21 stig í kvöld, tók sjö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Af hverju vann Grindavík? Barátta, barátta og aftur barátta. Þvílíkt og annað eins að fylgjast með þessari frammistöðu. Hjarta og sál sem vann þennan leik í dag. Spennustigið hjá KR var alls ekki rétt og þeir voru aldrei að fara vinna þennan leik. Það vantaði bara eitthvað stórkostalega mikið í deildar og bikarmeistarana.Bestu menn vallarins? Lewis Clich Jr. er að sýna það að hann er einn besti leikmaður landsins og er bara að fara á kostum fyrir þá gulu. Hann stjórnar leik liðsins svo ótrúlega vel að það er varla hægt að ímynda sér að liðið geti tapað þegar Clinch er í þessum ham. Ólafur Ólafsson átti fínan leik og það sama má segja um bróðir hans Þorleif Ólafsson. Ingvi Þór Guðmundsson skoraði mikilvægar körfur í kvöld og bara allt liðið var frábært.Hvað gekk illa? KR-ingar voru bara skelfilegir. Þeir skora 66 stig. Liðið hitti akkúrat ekki neitt og það þarf að fara fram allsherjar naflaskoðun hjá KR. Maður sér hæglega fyrir sér að Grindavík geti hreinlega orðið Íslandsmeistari eftir svona leik. KR-ingar eru í vandræðum, það er staðreynd.Grindavík-KR 79-66 (20-15, 22-18, 12-17, 25-16)Grindavík: Lewis Clinch Jr. 21/7 fráköst, Þorleifur Ólafsson 16, Dagur Kár Jónsson 12/5 fráköst/5 stoðsendingar, Ingvi Þór Guðmundsson 10/5 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 9, Ólafur Ólafsson 6/11 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 5/10 fráköst, Kristófer Breki Gylfason 0, Jens Valgeir Óskarsson 0, Magnús Már Ellertsson 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Hamid Dicko 0. KR: Philip Alawoya 19/11 fráköst, Pavel Ermolinskij 16/10 fráköst/7 stoðsendingar, Jón Arnór Stefánsson 14/5 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 7, Kristófer Acox 5, Darri Hilmarsson 4/4 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 1, Arnór Hermannsson 0, Orri Hilmarsson 0, Vilhjálmur Kári Jensson 0, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 0, Sigurður Á. Þorvaldsson 0. Jón: Þeir eru bara betri en við eins og staðan er í dagJón Arnór og félagar hafa ekki spilað vel í síðustu leikjum.vísir/anton„Það vantaði að nokkur skot myndu detta. Við vorum mikið að bakka með þá inn í teig og vorum ekki að setja niður skotin okkar,“ segir Jón Arnór Stefánsson, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. „Þetta lítur bara ekkert voðalega smurt út hjá okkur eins og staðan er. Þeir eru að loka vel á okkur og þegar skotin detta ekki þá er þetta svolítið stíft.“ Jón segir að augnablikið eigi eftir að koma fyrir KR á sunnudaginn, hann finnur það. „Við erum bara að fara í leik fimm og við verðum einbeittir þá. Við höldum bara áfram að keyra á þetta, reynum að brjóta þá niður og reynum að verða betri.“ Hann segir að KR-liðið hefði átt að fylgja eftir góðri byrjun á síðari hálfleiknum. „Þeir náðu að spila vel fram á síðustu sekúndu og við náðum ekki að standast það. Við mættum bara mjög góðu Grindavíkurliði og þeir eru bara betri en við eins og staðan er í dag.“ Jón ætlar ekki að gefast upp og lofaði að mæta vel gíraður í næsta leik. „Oddaleikir eru einstakir og það vita allir. Þetta er frábært fyrir körfuboltann á Íslandi, þó svo að við ætluðum heldur betur að vinna hér í kvöld, þá vilja allir oddaleik.“ Finnur: Munum nýta heimavöllinn á sunnudaginnFinnur Freyr segir sínum mönnum til.vísir/andri marinó„Nýtingin okkar á vítalínunni og í tveggja stiga skotunum var ekki góð og þá skorum við bara 66 stig,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, eftir leikinn í kvöld. „Við erum að skapa okkur fín færi en boltinn vildi bara ekki niður. Að sama skapi gerði Grindavík vel og skapaði sér góð færi og skutu boltanum vel.“ Finnur hrósar Grindvíkingum fyrir góða frammistöðu. „Mér fannst spennustigið bara vera fínt hjá mönnum fyrir leikinn og við ætluðum að gera vel. En það var kannski of mikið stress, ég veit það ekki. Mér fannst við gera margt vel í kvöld, sérstaklega varnarlega.“ Hann er mjög sáttur við það að vera með heimaleikjaréttinn. „Nú er gott að fá svona oddaleik í DHL-höllinni og við ætlum okkur að nýta það til fullnustu á sunnudaginn. Það er frí daginn eftir og svona, menn verða í stuði." Jóhann: Ekki víst að svona tækifæri komi aftur næstu árin„Þetta var verðskuldað. Það er kannski smá hroki í að segja það en mér fannst þetta allt að því sannfærandi hjá okkur,“ segir ákveðinn þjálfari Grindavíkur, Jóhann Þór Ólafsson, eftir magnaðan sigur liðsins á KR í kvöld. „Ég er rosalega hreykinn af mínu liði og hvernig við svöruðum er það gaf á bátinn. Við klárum þetta síðan með þvílíkum stæl. Leikmenn eins og Ingvi kom frábær inn í þetta og þetta var magnað.“ Grindvíkingar fórnuðu sér í alla bolta og voru mjög oft skrefinu á undan. Eins og þeir vilji sigurinn meira en KR. „Okkur langar þetta mikið en hvort okkur langar meira en þeir veit ég ekkert um. Við erum að fara svolítið langt á því að njóta. Gefa okkur alla í þetta og hafa gaman af þessu. Auðvitað er meira á bak við en við förum samt langt á því,“ segir þjálfarinn kátur. „Liðsheildin er frábær. Það eru allir fyrir einn. Það eru þessar klisjur. Við erum að spila við fantagott KR-lið og við höfum fundið einhvern takt sem er að virka og við spilum vel á okkar styrkleikum. Mér finnst við á köflum gera vel í að finna þeirra veikleika ef hægt er að tala um þá.“ Það er ekki bara það hjá strákunum hans Jóhanns því andlegi styrkurinn hjá liðinu er mikill. „Við höfum talað mikið um að halda okkur í stundinni og taka eina sókn í einu,“ segir Jóhann Þór en hann hefur alltaf lagt áherslu á að hans lið njóti þess að spila og það verður ekki skemmtilegra en að fá úrslitaleik um titilinn í Vesturbænum. „Við töluðum um fyrir leik hvað væri í húfi. Fara í stútfulla DHL-höll. Þetta er langstærsta sviðið og ég talaði um að það sé ekkert víst að svona tækifæri bjóðist aftur næstu árin. Þetta ætluðum við okkur og nú er komið að því. Við munum gefa þessu góðan séns.“ Þorleifur: Höldum alltaf áfram„Loksins vöknuðu stuðningsmennirnir og hjálpuðu okkur mjög mikið. Þetta var frábært,“ segir Grindvíkingurinn Þorleifur Ólafsson en hann var ein af hetjum Grindavíkur í kvöld. „Við vorum yfir mest allan leikinn en þeir koma til baka í þriðja. Svo í fjórða þá duttu skotin okkar en ekki þeirra. Svo slítum við þá frá okkur. Það hefði alveg eins getað farið á hinn veginn. Að þeir hittu en ekki við.“ Þó svo Þorleifur hafi verið hógvær þá voru Grindvíkingarnir einfaldlega baráttuglaðari og áttu skilið að vinna. „Það er rétt fyrir utan þriðja leikhluta. Hinir voru frábærir. Við stigum upp er gaf á bátinn. Við höfum bætt okkur vel í að halda bara áfram,“ segir Þorleifur sem var í meðhöndlun rétt fyrir leik og alltaf er hann var á bekknum. Þó svo hann sé ekki heill heilsu spilar hann eins og kóngur. „Ég fékk aðeins í nárann og þurfti að ýta á það. Það er fljótt að gleymast í látunum.“Tweets by @Visirkarfa1
Dominos-deild karla Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Enginn í bann en fullt af sektum Körfubolti Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Enski boltinn Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Íslenski boltinn Trump styður við bakið á Tiger Golf Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Sport Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Fótbolti Fleiri fréttir Enginn í bann en fullt af sektum Fyrsti táningurinn sem skorar fimmtíu stig í leik í NBA Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV „Við gátum bara ekki komið boltanum ofan í körfuna“ Doncic missir mögulega af öllum verðlaunum vegna meiðsla Meistararnir með sópinn á lofti Tindastóll - Njarðvík 58-88 | Njarðvík verður með sópinn á lofti í næsta leik Segir að frændi sinn sé algjör hálfviti inni á vellinum Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 75-78 | Keflavík stelur heimavellinum í fyrsta leik Tindastóll - ÍR 108-99 | Stólarnir veittu fyrsta höggið „Bara sorry, ég sé þetta ekki gerast“ „Nær alltaf að spýta einhverri geðveiki í þetta lið“ Grindvíkingar harma og fordæma hegðunina Fimm kærur á borði aganefndar: „Lítum þetta alvarlegum augum“ Uppgjörið: Grindavík - Njarðvík 87-97 | Njarðvíkingar taka fyrsta leik með látum Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Uppgjörið Stjarnan - KR 97-86 | Stjarnan tók öll völd í seinni hálfleik Hamar/Þór að ganga frá nágrönnunum Martin með bakið upp við vegg Fjölniskonur stíga stór skref í átt að úrvalsdeild Tryggvi og félagar í fínni stöðu fyrir seinni leikinn „Þetta bara öskrar á fimm leiki“ Stjórn Keflavíkur sendir frá sér yfirlýsingu Berglind sú yngsta til að skora tuttugu stig í úrslitakeppni „Þá er hann langhættulegasti leikmaður þessarar deildar“ Leitar til Harry Potter gegn galdraskák Grindvíkinga Þjálfarinn á Tene degi fyrir leik í úrslitakeppni: „Ég væri brjáluð“ „Dómarinn þarf að vera 100% viss um að þetta sé viljandi“ Uppgjörið KR - Keflavík 85-69 | KR-ingar voru feti framar allan leikinn og innbyrtu sigur Sjá meira