Hrollvekjandi stikla fyrir Ég man þig fær hárin til að rísa Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. apríl 2017 19:49 Með aðalhlutverk í myndinni fara þau Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Sara Dögg Ásgeirsdóttir.
Vísir frumsýnir nú nýja stiklu fyrir kvikmyndina Ég man þig sem frumsýnd verður eftir tæpan mánuð eða þann 5. maí næstkomandi. Myndin er gerð eftir samnefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur en leikstjóri myndarinnar er Óskar Þór Axelsson. Með aðalhlutverk í myndinni fara þau Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Sara Dögg Ásgeirsdóttir. Framleiðendur eru Sigurjón Sighvatsson, Skúli Malmquist, Þórir Snær Sigurjónsson og Chris Briggs Fyrir hönd Zik Zak Kvikmynda. Óhætt er að þessi nýja stikla fái hárin til að rísa en það ætti kannski ekki að koma þeim á óvart sem lesið hafa bókina enda er sagan afar spennandi og mjög hrollvekjandi á köflum. Ég man þig kom út árið 2010 og er ein vinsælasta bók Yrsu. Hún hefur selst í tæplega 30 þúsund eintökum hér á landi og hefur komið út á yfir 20 tungumálum. Söguþráðurinn er á þá leið að kona um sjötugt hengir sig í afskekktri kirkju á Vestfjörðum eftir að hafa unnið skemmdarverk á kirkjunni. Nýlega aðfluttur geðlæknir á Ísafirði, Freyr, aðstoðar lögreglu við rannsókn málsins en fljótlega kemur í ljós að nokkrir skólafélagar konunnar úr æsku hafa einnig látist undanfarin ár, öll annað hvort í dularfullum slysum eða fyrir eigin hendi. Frey bregður illa þegar í ljós kemur að sum hinna látnu höfðu haft óeðlilega mikinn áhuga á hvarfi sjö ára sonar hans sem gufaði upp þremur árum fyrr og hefur aldrei fundist. Handan Ísafjarðardjúps á Hesteyri eru þrjú borgarbörn komin til að gera upp gamalt hús. Skömmu eftir komu þeirra verða þau þess áskynja að þau eru ekki ein á svæðinu. Sögurnar tvær tengjast smám saman þegar á líður, ekki síst í gegnum sextíu ára gamalt mannshvarfsmál 10 ára drengs. Hér að neðan má sjá nýja stiklu fyrir myndina sem frumsýnd verður þann 5. maí eins og áður segir.
Tengdar fréttir Sjáðu fyrstu stikluna úr Ég man þig: Drungalegir atburðir á Hesteyri Vísir frumsýnir í dag fyrsta myndbrotið úr kvikmyndinni Ég man þig. Myndin er gerð eftir samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur sem seldist í bílförmum hér á landi. 7. mars 2017 13:30 Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira
Sjáðu fyrstu stikluna úr Ég man þig: Drungalegir atburðir á Hesteyri Vísir frumsýnir í dag fyrsta myndbrotið úr kvikmyndinni Ég man þig. Myndin er gerð eftir samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur sem seldist í bílförmum hér á landi. 7. mars 2017 13:30