Bein útsending: Blekkingin við einkavæðingu Búnaðarbankans rædd á þingi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. mars 2017 10:00 Frá Alþingi. Mynd/Anton Brink
Þingfundur hefst á Alþingi nú klukkan 10:30 með óundirbúnum fyrirspurnatíma ráðherra. Samkvæmt vef Alþingis sitja þau fyrir svörum Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, Benedikt Jóhannesson, fjármála-og efnahagsráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra, og Björt Ólafsdóttir, umhverfis-og auðlindaráðherra. Fastlega má búast við því að ráðherrarnir spurðir út í það helsta sem er til umræðu í þjóðfélaginu nú, það er skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans, kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík og útgerðarfyrirtækið HB Granda sem hefur frestað því að flytja landvinnslu botnfisks frá Akranesi til Reykjavíkur eftir að hafa tilkynnt um flutninginn fyrr í vikunni. Eftir að óundirbúnum fyrirspurnum lýkur verður svo skýrsla rannsóknarnefndarinnar um einkavæðingu Búnaðarbankans rædd á þingi en eins og greint var frá í gær er það niðurstaða nefndarinnar að stjórnvöld, almenningur og fjölmiðlar hafi verið blekkt þegar því var haldið fram að þýski bankinn væri að kaupa hlut í Búnaðarbankanum árið 2003. Hauck & Aufhäuser hafi í raun aldrei verið kaupandi að hlutnum heldur aflandsfélag sem á endanum hagnaðist um 100 milljónir dollara vegna viðskiptanna en rúmlega helmingur hagnaðarins rann til aflandsfélags í eigu Ólafs Ólafssonar og hinn helmingur til félags sem ekki er vitað hver átti þó rannsóknarnefndin telji líkur á að það hafi tengst Kaupþingi og stjórnendum þar. Fylgjast má með beinni útsendingu frá fundi Alþingis í spilaranum hér að neðan.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira