Leynivopn hjá Keflvíkingum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2017 14:27 Gunnar Einarsson varð Íslandsmeistari með Keflavík vorið 1998. Vísir/Daníel
Gunnar Einarsson er leikreyndasti leikmaður Keflavíkur í úrslitakeppni karla og einn sigursælasti leikmaður félagsins frá upphafi. Skórnir hafa að mestu verið upp á hillu hjá kappanum undanfarin sex ár, fyrir utan 2014-15 tímabilið og einn leik fyrr í vetur en nú segir karfan.is að Gunnar ætli að mæta til leiks í fjórða leik Keflavíkur og Tindastóls í átta liða úrslitum Domino´s deildar karla. Gunnar hefur leikið 148 leiki fyrir Keflavík í úrslitakeppni og fagnað sigri í 92 þeirra. Hann varð sex sinnum Íslandsmeistari með Keflvíkingum eða árin 1997, 1999, 2003, 2004, 2005 og 2008. Það eru jafnframt liðin 24 ár síðan að Keflavík vann Íslandsmeistaratitilinn án aðstoðar Gunnars en það gerðist síðast vorið 1993. Gunnar var í hóp hjá Keflavík á móti Snæfelli í Stykkishólmi fyrr á þessu tímabili og var einnig aðstoðarþjálfari Hjartar Harðarsonar áður en Friðrik Ingi Rúnarsson tók við liðinu. Spili Gunnar í kvöld þá verður þetta nítjánda úrslitakeppnin sem hann tekur þátt í en sú fyrsta hjá honum var vorið 1995 þegar hann var 18 ára gamall. Gunnar mun halda upp á fertugsafmælið sitt í næsta mánuði.
Dominos-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Sjá meira