Kanínurnar búnar að missa allt sjálfstraust Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2017 19:50
Svendborg Rabbits, lið Arnars Guðjónsonar, tapaði í kvöld á heimavelli á móti langneðsta liði dönsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Svendborg Rabbits tapaði þá með eins stigs mun á móti Stevnsgade SuperMen, 59-58, en súpermennirnir hafa ekki staðið undir nafni í vetur fyrr en kannski í kvöld. Þetta var aðeins annar sigur Stevnsgade SuperMen liðsins á tímabilinu en liðið er enn í júmbósætinu og heilum sjö sigrum á eftir næstneðsta liðinu. Kanínurnar hans Arnars hafa nú tapað fimm heimaleikjum í röð en liðið vann sex af fyrstu níu heimaleikjum vetrarins. Kanínurnar virðast vera búnar að missa allt sjálfstraust en þrátt fyirr að vera enn í fjórða sæti deildarinnar hefur liðinu aðeins tekist að vinna þrjá af síðustu tíu deildarleikjum sínum. Svendborg Rabbits var 20-12 yfir eftir fyrsta leikhlutann en skoraði bara 38 stig samanlagt í síðustu þremur leikhlutunum. Svendborg Rabbits liðið skoraði sjö síðustu stig leiksins en tókst ekki að stela sigrinum í lokin. Stefan Bonneau, fyrrum leikmaður Njarðvíkur, skoraði 10 stig fyrir Svendborg Rabbits í köld en Axel Kárason var stiglaus. Axel tók 4 fráköst á 17 mínútum. Þetta var fyrsti útisigur Stevnsgade SuperMen á tímabilinu en liðið var búið að tapa þrettán útileikjum í röð. Tapið í kvöld er því gríðarlega vonbrigði fyrir Svendborg Rabbits liðið sem fékk þarna tækifæri til að enda taphrinu sína á heimavelli.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira