Baráttan um sæti í úrslitakeppninni harðnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. mars 2017 07:00
20. umferð Domino's-deildar karla hefst í kvöld með fjórum leikjum en þetta er þriðja síðasta umferð deildarkeppninnar. Mikil spenna ríkir á öllum vígstöðvum um deildarmeistaratitilinn, síðustu sætin í úrslitakeppninni og hvaða lið fellur með Snæfelli. Þrjú lið hafa stungið önnur af en aðeins tvö stig skilja þau að. Öll þrjú, KR, Tindastóll og Stjarnan, spila í kvöld en eiga erfið verkefni fyrir höndum. KR tekur á móti spræku liði Keflavíkur sem hefur ekki tapað leik síðan Friðrik Ingi Rúnarsson tók við þjálfun þess og hin tvö eiga erfiða leiki á útivöllum – Stjarnan gegn Grindavík og Tindastóll gegn Skallagrími sem er í harðri fallbaráttu gegn Haukum. Í toppbaráttunni er KR skrefinu á undan með 30 stig en hin tvö eru jöfn að stigum með 28 stig hvort. Aðeins tvö stig skilja að liðin í 5.-9. sæti deildarinnar en átta efstu komast áfram í úrslitakeppnina. Eitt þeirra mun því sitja eftir. Einn innbyrðisslagur verður í þessari baráttu í kvöld þegar Þór tekur á móti ÍR í Þorlákshöfn. ÍR-ingar hafa verið sjóðheitir á heimavelli og unnið sex leiki í röð í Seljaskóla. Árangurinn á útivelli er hins vegar ekkert til að hrópa húrra fyrir, þrjú töp í röð og aðeins tveir sigrar í níu leikjum alls á tímabilinu. Þess má einnig geta að í þessari viðureign mætast tveir skemmtilegustu stuðningsmannahópar deildarinnar; Græni drekinn sem verður á heimavelli og Ghetto Hooligans sem hafa gert allt vitlaust í Breiðholtinu að undanförnu. Skallagrímur er sem stendur í tíunda sæti deildarinnar en gæti dottið niður í fallsæti með tapi gegn Tindastóli í kvöld ef Haukar vinna botnlið Snæfells á morgun. Nýliðarnir úr Borgarnesi voru þó hársbreidd frá því að vinna Stjörnuna í síðustu umferð. Grindavík fer svo langt með að tryggja sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar með sigri á Stjörnunni í Mustad-höllinni suður með sjó í kvöld. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15 í kvöld en viðureign KR og Keflavíkur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira