Sebrahestarnir úr vesturbænum oft hátíðarmatur í Ljónagryfjunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2017 07:00 Pavel Ermolinskij og félögum hefur gengið illa í Ljónagryfjunni á undanförnum misserum. vísir/anton
Njarðvíkingar fá tækifæri til að hitamæla liðið í kvöld þegar liðið fær Íslands- og bikarmeistara KR í heimsókn í Ljónagryfjuna í Njarðvík. Njarðvíkingar hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum í Domino´s deildinni eða jafnmarga deildarsigri og KR-ingar frá og með 13. janúar. Njarðvík hefur unnið bæði Tindastól og Stjörnuna á þessum tíma og getur nú lokað toppliða hringnum með sigri í kvöld. Leikur Njarðvíkur og KR hefst klukkan 20.00 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Þetta er lokaleikur 19. umferðarinnar.Sebrahestarnir úr Vesturbænum hafa oft verið hátíðarmatur í Ljónagryfjunni á síðustu árum því KR-liðið hefur margoft verið þar í vandræðum undanfarin fjögur tímabil. KR-ingar hafa tapað fimm sinnum í Njarðvík á Íslandsmóti (4) eða í bikar (1) í þjálfaratíð Finns Freys Stefánssonar eða oftar en í öllum öðrum húsum fyrir utan DHL-höllina. KR-liðið hefur samt unnið deildarleiki sína í Ljónagryfjunni undanfarin ár en tapað leikjunum í úrslitakeppni og bikarkeppni í húsinu. Við þetta bætist vandræðalega frammistaða KR-liðsins í fyrri leik liðanna þar sem Njarðvíkingar unnu ellefu stiga sigur í DHL-höllinni og héldu meisturunum í aðeins 61 stigi. KR-ingar töpuðu óvænt á Akureyri í síðasta útileik sínum en svöruðu því með sannfærandi sigri á ÍR í síðustu umferð. Sigur kemur Vesturbæingum enn nær deildarmeistaratitlinum en heimamenn í Njarðvík eru í mikilli baráttu um að fá að vera með í úrslitakeppninni. Það verður allavega saga til næsta bæjar verði Njarðvíkingar með fullt hús á móti Íslandsmeisturunum í vetur.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira