Baltasar langt kominn með Kötlu-þættina og lítur á óróann í eldstöðinni sem "teaser“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. febrúar 2017 21:15 „
Við erum komin mjög langt með þetta. Við erum búin að skrifa fyrsta þáttinn og útlínu af fyrstu seríunni, tíu þáttum,“ segir Baltasar Kormákur um fyrirhuga þætti sína um eldgos í Kötlu. Baltasar var ásamt Páli Einarssyni, jarðeðlisfræðingi, gestur Eddu Andrésardóttur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem þeir ræddu vítt og breitt um kvikmyndagerðina og hversu sennilegt er að Katla geti kosið í tvö ár samfellt, en þegar þættirnir hefjast verður Katla búinn að í gjósa í tvö ár samfleytt. „Katla og reyndar þessar helstu eldstöðvar eru mjög fjölhæfar eldstöðvar. Þær geta gert allan skrattann, bæði mjög stutt gos sem standa í nokkrar mínútur eða klukkutíma en þær eiga líka þetta til að gjósa stundum mjög lengi,“ sagði Páll spurður um hvort að Katla ætti það til að gjósa svo lengi.Eyjafjallajökull gaus með látum árið 2010Vísir/Vilhelm„Þú verður bara að láta þér detta nógu margt í hug og svo rekum við það bara beint ofan í þig aftur“ Baltasar vonast til þess að verkefnið fari í gang á næsta ári og er hann nú í viðræðum við eitt stærsta fyrirtæki í Evrópu um samstarf. Baltasar segir að mikill áhugi sé fyrir þáttunum enda vekji Katla mikla athygli, ekki síst eftir gosið í Eyjafjallajökli árið 2010 sem hafði mikil áhrif á samgöngur, sérstaklega í Evrópu. Í takt við það munu bæði íslenskir og erlendir leikarar leika hlutverk í þáttunum en Baltasar segir að í þáttunum verði einnig örlítill vísindaskáldskapur. „Þetta daðrar við sci-fi. VIð erum að sjá hluti sem við höfum ekki séð síðan á Ísöld. Það veit enginn hvað er á þessum jökli,“ sagði Baltasar en bráðnun jökla mun spila sitt hlutverk í þáttunum.Sjá einnig: Öll fjögur virkustu eldfjöllin í einhvers konar hamÁ þessum tímapunkti blandaði vísindamaðurinn Páll sér í umræðuna og benti Baltasar á að vísindamenn vissu nú ýmislegt um Kötlu. „Það er nú búið að kortleggja sæmilega landslag og svoleiðis og menn vita nokkurn veginn hvernig Katla er í laginu og allt það en hún er miklu stærri en menn gera sér grein fyrir,“ sagði Páll.Baltasar hefur áður tekist á við hamfarir.„Hans hlutverk er að nota staðreyndir, mitt hlutverk er að búa til mystík, ég vil ekki vita of mikið,“ sagði Baltasar þá hlæjandi en hann lítur á þann óróa sem verið hefur í Kötlu undanfarna mánuði sem ákveðna auglýsingu fyrir þættina. „Ég lít á Kötlu og hristinginn í henni, ég vil nú ekki vera of léttúðugur, sem eins og teaser-trailer. Hún er að búa til spennu fyrir okkur hægt og rólega,“ sagði Baltasar. „Þú verður bara að láta þér detta nógu margt í hug og svo rekum við það bara beint ofan í þig aftur,“ svaraði Páll um hæl.Spurði hvort að Páll gæti ekki lesið yfir handrit og samið tónlist En þrátt fyrir að Baltasar sé sérfræðingurinn um kvikmyndagerð og Páll sérfræðingur um eldstöðvar hefur Páll þó reynslu af því starfa við handritsgerð en á námsárum hans í Bandaríkjunum lagfærði hann handrit að þáttunum Hawaii 5-0 þar sem einn handritshöfunda hafði farið ansi frjálslega með hlutverk eldgoss í einum þætti. Lagði Edda þá til að Baltasar fengi Pál til þess að fara yfir handritið og skaut því að Páli væri margt til lista lagt fyrir utan vísindastörfin, hann spilaði bæði á kontrabassa og selló. Spurði Edda hvort það væri ekki lag að fá Pál til þess að spila inn á þættina? „Selló og kontrabassi eru náttúrulega hljóðfæri sem að hljóma mjög vel með eldgosi þannig að það er aldrei að vita nema ég fái Palla til að, þegar hann er búinn að leiðrétta handritið, til að koma og spila fyrir mig,“ sagði Baltasar. „Það má sarga fyrir þig tón og tón,“ svaraði Páll en innslagið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Öll fjögur virkustu eldfjöllin í einhvers konar ham "Við getum litið sagt hvað gerist í næstu viku en við getum sagt hvað gerist á næsta klukkutíma.“ 2. febrúar 2017 12:00 Mikill meðbyr með milljarðamynd Baltasars: „Það er svolítill hiti á þessu“ Baltasar Kormákur undirbýr myndina Adrift með töffara í aðalhlutverki sem er ekki einfalt "bjútí“. 9. febrúar 2017 15:45 Engar upplýsingar um fjölda ferðamanna á rýmingarsvæðinu í kringum Kötlu Yfirvöld hafa ekki upplýsingar um fjölda þeirra ferðamanna sem eru á rýmingarsvæðinu í kringum Kötlu komi til eldgoss. 31. janúar 2017 19:32 Mest lesið Hrafnhildur hafnaði í öðru sæti í Miss Earth Lífið Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Bíó og sjónvarp Lifa hægara lífi í New York en á Íslandi Lífið Þrjár íslenskar kvikmyndir hlutu verðlaun í Þýskalandi Lífið Krakkatía vikunnar: Handbolti, eldgos og Alþingi Lífið Bein útsending: Vikulöng þrekraun Einars Lífið Nammimaðurinn er allur Lífið Niðurgangurinn á Þingvöllum þaggaður niður Lífið Rómantík í loftinu hjá Sveindísi Jane Lífið Fagnar átta árum án hugbreytandi efna Lífið Fleiri fréttir Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Hrekkjavökumyndir til að hafa í huga fyrir kvöldið Ulf Pilgaard er látinn Vilja gefa út síðustu þættina með Payne Frumsýning á Vísi: Bannað að hlæja í boði sem er bannað börnum Bíó Paradís heiðrað af blindum Hollywood stjörnur við Höfða Lá beinast við að gera mynd um Laugavegshlaupið Lýsir augnablikinu þegar hann náði Örnu á sitt band Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Torfi vinnur að því að koma Minecraft á hvíta tjaldið Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn Super Happy Forever hlaut Gullna lundann Fagnaðarfundir þegar Bong Joon-Ho hitti Dag Kára Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Sjá meira
Öll fjögur virkustu eldfjöllin í einhvers konar ham "Við getum litið sagt hvað gerist í næstu viku en við getum sagt hvað gerist á næsta klukkutíma.“ 2. febrúar 2017 12:00
Mikill meðbyr með milljarðamynd Baltasars: „Það er svolítill hiti á þessu“ Baltasar Kormákur undirbýr myndina Adrift með töffara í aðalhlutverki sem er ekki einfalt "bjútí“. 9. febrúar 2017 15:45
Engar upplýsingar um fjölda ferðamanna á rýmingarsvæðinu í kringum Kötlu Yfirvöld hafa ekki upplýsingar um fjölda þeirra ferðamanna sem eru á rýmingarsvæðinu í kringum Kötlu komi til eldgoss. 31. janúar 2017 19:32