Körfuboltakvöld: Framlengingin | "Þetta er gjörsamlega galin ákvörðun hjá Ívari“ 25. febrúar 2017 23:30
Það er alltaf hart tekist á þegar komið er í framlenginguna í Körfuboltakvöldi. Á því var engin undantekning á föstudagskvöldið á Stöð 2 Sport. Þáttarstjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson stýrði umræðunni að vanda en honum til aðstoðar voru þeir Jón Halldór Eðvaldsson og Fannar Ólafsson að þessu sinni. Byrjuðu þeir á að ræða möguleika Stólanna á deildarmeistaratitlinum áður en farið var í að ræða hvaða lið myndi sitja eftir í baráttunni um síðasta sætið í úrslitakeppninni. Næst var farið í möguleika Garðbæinga í úrslitakeppninni án Justin Shouse en mikið hik hefur verið á liðinu undanfarnar vikur áður og þaðan í líklegustu meistaraefnin í kvennadeildinni. Að lokum var farið í mál sem vakti mikla athygli í gær þegar í ljós kom að Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, verður ekki með liðinu í lífsnauðsynlegum leik gegn Snæfelli á heimavelli en hann verður á skíðum erlendis. „Ég skil ekki svona bull, ég get varla fundið orðin til að lýsa þessu. Ég fór á eitt skólaball þegar ég var í Menntaskólanum við Sund þegar ég var í Keflavík. Bara eitt! Það var bannað að fara í eitthvað svona, mér er skítsama hvað allir segja þá er þetta fáránlegt. Hann hefur reyndar litlu náð út úr þessu liði og kannski verður þetta fínt,“ sagði Fannar og Jón tók undir orð hans.Sjá einnig:Óvíst hvort Ívar stýrir Haukum gegn Snæfelli vegna skíðaferðar „Þetta er gjörsamlega galið. Við getum sett þetta í samhengi og hugsað um hvað ef besti leikmaður liðsins myndi bara skella sér í vikufrí? Ég held reyndar að Haukar vinni þennan leik en mér finnst þetta bara svo galið.“
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Óvíst hvort Ívar stýrir Haukum gegn Snæfelli vegna skíðaferðar Ekki er víst hvort Ívar Ásgrímsson stýri Haukum gegn Snæfelli í Domino's deild karla eftir viku. 24. febrúar 2017 17:19 Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Åge Hareide látinn Fótbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Fótbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Fleiri fréttir ÍR - Valur | Sjóðheitir gestir í Breiðholti Tindastóll - KR | Sá fyrsti eftir metaleikinn mikla Þór Þ. - Grindavík | Ólíkt hafast þau að Keflavík - Njarðvík | Montrétturinn í húfi fyrir jólin Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Sjá meira
Óvíst hvort Ívar stýrir Haukum gegn Snæfelli vegna skíðaferðar Ekki er víst hvort Ívar Ásgrímsson stýri Haukum gegn Snæfelli í Domino's deild karla eftir viku. 24. febrúar 2017 17:19