Nálgast hundraðasta sigur sinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2017 22:30 Katie Lou Samuelson og Napheesa Collier fengu stærri hlutverk í vetur. Vísir/Getty
Kvennalið University of Connecticut setur nú nýtt met í bandaríska háskólakörfuboltanum með hverjum sigurleik og liðið er nú farið að nálgast þriggja stafa tölu í sigurgöngunni. University of Connecticut, oftast kallað UConn, vann nú síðast 97-69 sigur á Temple en þetta var 96. sigurleikur liðsins í röð. Gamla metið átti kvennalið UConn líka, en liðið vann 90 leiki í röð frá 2008 til 2010. UConn hefur orðið bandarískur meistari undanfarin fjögur ár og í fyrravetur varð liðið bandarískur háskólameistari án þess að tapa leik, vann þá alla 38 leiki tímabilsins. Liðið tapaði síðast 17. nóvember 2014 en UConn tapaði þá á móti Stanford í framlengdum leik. Það var aðeins annar leikur liðsins á tímabilinu og liðið tapaði ekki leik eftir það. Yfirburðir liðsins í sigurgöngunni sjást ekki síst á því að aðeins tveir leikjanna hafa unnið með minna en tíu stigum. Það sem gerir það enn merkilegra að UConn hafi unnið tuttugu fyrstu leiki sína á þessu tímabili er það að liðið missti sína þrjá bestu leikmenn síðasta vor. Þær Breanna Stewart, Moriah Jefferson og Morgan Tuck voru allar valdar númer eitt til þrjú í WNBA-nýliðavalinu og eru allar að spila í WNBA-deildinni. Liðið hefur ekki aðeins náð að halda velli eftir þennan missi heldur hefur liðið ekki stigið feilspor með nýjum leikmönnum í stórum hlutverkum. Fyrsti leikurinn vannst reyndar bara með tveimur stigum en síðan hafa flestir leikjanna unnist með yfirburðum.96 wins! #AndCountingThe Huskies set another NCAA record for consecutive road games won as UConn holds off Temple 97-69. #UConnNation pic.twitter.com/zOxEF4SM1u— UConn Women's Hoops (@UConnWBB) February 2, 2017 With tonight's win over the Owls, UConn set another NCAA record with 35-straight wins on the road!35 on the road, 96 overall #AndCounting pic.twitter.com/27cv9z1VK9— UConn Women's Hoops (@UConnWBB) February 2, 2017
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira