Körfubolti

Skoruðu tæpan helming stiga Canisius

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Margrét Rósa og Sara Rún skoruðu samtals 22 stig.
Margrét Rósa og Sara Rún skoruðu samtals 22 stig. vísir/stefán
Margrét Rósa Hálfdánardóttir og Sara Rún Hinriksdóttir skoruðu 22 af 53 stigum Canisius í tapi fyrir Quinnipiac, 53-64, í háskólaboltanum í Bandaríkjunum í kvöld.

Margrét Rósa og Sara Rún voru báðar í byrjunarliði Canisius í leiknum í kvöld og voru nánast þær einu sem komust eitthvað áleiðis í sókninni.

Margrét Rósa var stigahæst í liði Canisius með 12 stig. Sara Rún kom næst með 10 stig. Hún tók einnig sex fráköst, flest allra í liði Canisius sem tapaði frákastabaráttunni 47-32, og gaf fjórar stoðsendingar.

Tvær íslenskar stelpur mættust þegar Marist tók á móti Niagra.

Lovísa Björt Henningsdóttir leikur með Marist sem vann leikinn 58-60. Lovísa skoraði fimm stig, tók fjögur fráköst, gaf fjórar stoðsendingar, varði tvö skot og stal tveimur boltum.

Dagný Lísa Davíðsdóttir leikur með Niagra. Hún skoraði tvö stig á þeim 10 mínútum sem hún lék.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×