Körfubolti

Jón Axel stoðsendingahæstur í sigri Davidson

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Axel er á sínu fyrsta tímabili hjá Davidson.
Jón Axel er á sínu fyrsta tímabili hjá Davidson. vísir/getty
Jón Axel Guðmundsson var stoðsendingahæstur á vellinum þegar Davidson bar sigurorð af Saint Louis í háskólaboltanum í Bandaríkjunum í kvöld. Lokatölur 66-77, Davidson í vil.

Jón Axel var í byrjunarliði Davidson í leiknum í kvöld og lék í 34 mínútur.

Grindvíkingurinn skoraði níu stig, tók fimm fráköst og gaf átta stoðsendingar. Enginn á vellinum gaf fleiri stoðsendingar en hann.

Jón Axel, sem er á sínu fyrsta tímabili hjá Davidson, er með 8,1 stig, 4,6 fráköst og 4,1 stoðsendingu að meðaltali í leik í vetur.

Davidson hefur unnið átta leiki í vetur og tapað sex. Sigurinn í kvöld var aðeins sá annar á útivelli í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×