Körfubolti

Gunnar Ólafsson með sex þrista leik fyrir St. Francis

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Ólafsson.
Gunnar Ólafsson. Mynd/Heimasíða St. Francis
Gunnar Ólafsson var stigahæstur hjá St. Francis í nótt þegar liðið tapaði á heimavelli á móti Canisius 81-91.

Gunnar hitti úr 6 af 9 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Þetta var langbesti leikur Gunnars á tímabilinu. Hann var einnig með 5 fráköst, 2 stoðsendingar og 1 stolinn bolta á þeim 37 mínútum sem hann spilaði.

Gunnar hafði mest skorað 8 stig í einum leik í vetur og hann tvöfaldaði fjölda þriggja stiga karfa sinna í þessum eina leik. Gunnar hafði aðeins hitti úr 3 af 16 þriggja stiga skotum sínum í fyrstu níu leikjunum.

Gunnar hefur skorað 5,2 stig og tekið 5,9 fráköst að meðaltali á 21,3 mínútum í leik á tímabilinu en  St. Francis hefur aðeins unnið 2 af 10 leikjum sínum.

Nú verður spennandi að sá hvernig Gunnar nær að fylgja þessum frábæra leik sínum eftir á næstu vikum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×