Spurður hvernig hann fékk starfið sem yfirhönnuður JÖR segist Jóhann hafa þekkt Guðmund Jörundsson, eiganda JÖR, í langan tíma og unnið með honum í gegnum tíðina. „Ég er búinn að þekkja Gumma lengi, frá því að við vorum í barnaskóla. Svo sátum við Logi Pedro og Sigbjartur Sturla fyrir hjá honum þegar hann var að vinna í Kormáki og Skildi. Við vorum þá í fermingarbæklingnum, þegar við vorum sem sagt árinu eldri en fermingarbörn eru. Svo kom ég inn í JÖR sem fyrirsæta árið 2013 og gekk þá tískupallinn á RFF,“ útskýrir Jóhann sem er nýútskrifaður frá Listaháskóla Íslands af sviðshöfundarbraut.
„En það er ekki fyrr en í vor sem við byrjum þetta samtal um að ég kæmi inn í fyrirtækið. Hann bar þá þessa hugmynd undir mig, að ég kæmi inn á einhverjum „creative“-forsendum og mér leist bara vel á það. Svo byrjaði ég að funda með honum í sumar til að ræða framhaldið,“ segir Jóhann sem er spenntur fyrir komandi tímum.
Hans fyrsta verkefni verður að koma nýrri verslun á Skólavörðustíg á koppinn. „Já, svo er planið líka að opna nýja búð á Geirsgötu, í húsakynnum sem Faxaflóahafnir eiga. Svo er stefnan fyrir vorið að hanna nýja línu ásamt Steinunni Eyju og Gumma.“
Er að vinna með Írafár-tískuna
Jóhann sér fram á að með tilkomu hans inn í fyrirtækið muni markhópur verslunarinnar breikka. „Við munum leggja nýjar áherslur en þó halda í stílinn sem hefur alltaf einkennt JÖR. Við sjáum fram á að allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi hjá JÖR og sömuleiðis eitthvað fyrir hvaða tilefni sem er. JÖR byrjaði sem svona jakkafata-dæmi en hefur síðan þá fært út kvíarnar. Ég hef fulla trú á að JÖR geti verið í forystu í öllu því sem er að gerast í tísku hverju sinni.“

Finnur ekki fyrir stressi
Eins og áður sagði er Jóhann útskrifaður sviðshöfundur frá LHÍ. Hann segir það nám nýtast sér á öllum skapandi sviðum. „Það nám kenndi mér að skilgreina mína listrænu sýn og hún nær einhvern veginn yfir allar skapandi greinar. Mín listræna sýn er alveg óháð einhverju einu fagi,“ segir Jóhann sem sá þó ekki í upphafi fyrir sér að fara út í fatahönnun. „Nei, en áhugi minn á fatnaði hefur verið að aukast með árunum og ég hef verið að vinna að fleiri verkefnum sem tengjast fatnaði, þannig að mér finnst þetta alveg rökrétt þróun.“
„Nei, ekki neitt sko,“ svarar Jóhann spurður hvort hann finni fyrir einhverju stressi í tengslum við nýja starfið. „Ég reyni að taka sjálfan mig ekki of alvarlega. Þá þýðir ekkert að vera stressaður.“