Körfubolti

Martin stigahæstur í naumum sigri á liði Hauks Helga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Okkar menn voru að sjálfsögðu á auglýsingunni fyrir leikinn.
Okkar menn voru að sjálfsögðu á auglýsingunni fyrir leikinn.
Íslendingaliðin Charleville og Rouen mættust í franska körfuboltanum í kvöld og úr varð heldur betur spennandi leikur.

Ekki var endilega búist við því enda Charleville í öðru sæti deildarinnar en Rouen því neðst.

Jafnt var á nánast öllum tölum en Martin Hermannsson og félagar í Charleville mörðu sigur að lokum, 89-85.

Martin átti enn einn stórleikinn fyrir Charleville í kvöld. Var stigahæstur á vellinum með 26 stig og tæplega 60 prósent skotnýtingu. Hann gaf einnig 9 stoðsendingar og tók 5 fráköst.

Haukur Helgi Pálsson skoraði 11 stig fyrir Rouen og tók 4 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×