Hending eða hlutskipti? Brynhildur Björnsdóttir skrifar 6. desember 2016 11:00
Bækur Skriftir- Örlagagletta Pétur Gunnarsson JPV 191 bls Kápa: Alexandra Buhl Prentuð í Odda Það er eitthvað við það hvernig Pétur Gunnarsson skrifar. Eitthvað við hlýjuna og kímnina í því hvernig hann sér heiminn og miðlar honum, stundum með því að skella einu myndskeiði inn í frásögn af atburðum sem skyndilega fá allt aðra vídd og lengd. Sumar setningarnar eru svo fagurmótaðar að þær ættu heima í sérprenti, svona „Gullkorn úr penna Péturs Gunnarssonar“, eða á einhverjum stað í heilanum þar sem væri auðvelt að grípa til þeirra þegar þarf að lýsa einhverju eins og best verður á kosið. Í nýjustu bókinni Skriftir – Örlagagletta er hann að velta fyrir sér hvað ræður því hvernig lífið verður, hvernig það orsakaðist að hann varð að sér, hvað skapar manninn. Sem er greinilega fleira en fötin, þó öðru sé haldið fram í laginu um Sirkus Geira Smart sem varð til þegar Spilverk þjóðanna var fengið til að semja tónlistina við leikritið Grænjaxla sem Pétur skrifaði 1976 og á sinn þátt í að frasinn Fötin skapa manninn varð svo sígildur sem raun ber vitni, þó að upphaflega sé þessi frasi úr auglýsingu frá Karnabæ og kó. Skriftir er persónuleg bók sem segir sögu þess sem ætlaði, eða langaði eða langaði ekki alltaf að verða rithöfundur. Pétur átta ára ætlaði til dæmis að verða lögfræðingur vegna þess að hann taldi að það hlyti að vera „ákaflega fróðlegt“. Bókin hefst á því þegar hann sér konuna sína í fyrsta sinn og verður ástfanginn um leið en svo fáum við forsögu piltsins sem beið eftir lyftu í Útvarpshúsinu með þessari stúlku. Lýsingin á ástinni blandast við frásagnir af árunum í MR og teygir sig svo aftur til bernskuáranna þar sem Pétur tileinkar kennaranum sínum, henni Dagnýju, heilan kafla því hún var alltaf að láta nemendur skrifa ritgerðir. Hann skrifar um Reykjavík bernskunnar og æskunnar sem hafði allt sem til þurfti og lýsir ýmsum samferðamönnum sínum. Og atburðum, til dæmis því þegar gamall skólafélagi hans drukknar í sundlaug, atvik sem þeir ættu að kannast við sem hafa lesið fyrstu bækur Péturs. Þannig verður hver atburður hluti af því hvernig rithöfundur Pétur Gunnarsson var og er, og einnig foreldrar hans, afar og ömmur, allt sem gerist á þannig stundu að það hefur áhrif á hann, festist í minninu og verður honum til sköpunar. Í bókinni eru myndir, bréf og dagbókarbrot úr lífi Péturs, ættingja og forfeðra, sem gera tengingar lesandans við þetta fólk skýrari og markvissari. Einkum er gaman að skoða bréf og dagbókarfærslur og spá í skriftina og skriftirnar saman. Skriftir – örlagagletta er sagan af því hvernig fólk verður að því sem það er með öllum sínum rótum og greinum út í ýmsar áttir og vangaveltan stingur alltaf öðru hverju upp kollinum, hvað er ákveðið, hvað er hending og hvað er hlutskipti, hvað gerðist óvart og hvað er rökrétt afleiðing alls þess sem á undan kom. Falleg og látlaus bók sem er notalegt að blaða í, staldra við og velta fyrir sér hvernig eigin saga myndi líta út og hversu mikið af eigin lífi er hending og hversu mikið hlutskipti.Niðurstaða: Falleg og skemmtileg bók um það hvernig fólk verður að sjálfu sér.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. desember.
Bókmenntir Menning Mest lesið Theodór Elmar og Pattra í sundur Lífið Simmi Vill í meðferð Lífið Þurfa að staðfesta á fimm ára fresti að dóttir þeirra sé enn með Downs Lífið Íslensk mæðgin slá í gegn í herferð Zöru Tíska og hönnun „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Menning Kristján Guðmundsson látinn Lífið Sjóðheitar skvísur í feldsfíling Tíska og hönnun „Mér finnst þessi vegferð okkar ótrúlega glæsileg“ Lífið Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Bíó og sjónvarp Sögufrægt hús falt fyrir tvö hundruð milljónir Lífið Fleiri fréttir Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Meðalmennskan plagar Brján Furðuleg forréttindablinda Slappur smassborgari Shine on, you crazy Íslendingar! Skömminni skilað Friðrik Ómar bauð upp á sveppi – og Villi hefði elskað það! Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Sjá meira