Gareth Bale leggst á skurðarborðið á þriðjudaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2016 13:31 Gareth Bale. Vísir/Getty
Gareth Bale, framherji Real Madrid og velska landsliðsins, endar eftirminnilegt ár á skurðarborðinu en ökklameiðsli kappans eru það alvarleg að þau kalla á aðgerð. Bale fer í aðgerðina næsta þriðjudag en hann meiddist á ökkla í sigrinum á Sporting Lissabon í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöldið. Spænskir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að Bale verði frá í allt að fjóra mánuði eftir aðgerðina. Þetta er búið að vera flott ár hjá Bale sem vann Meistaradeildina með Real Madrid liðinu og fór síðan alla leið í undanúrslitin á EM í Frakklandi með velska landsliðinu. Gareth Bale getur því ekki tekið þátt í El Clasico á móti Barcelona sem fer fram 3. desember næstkomandi. Næsti leikur velska landsliðsins í undankeppninni er 24. mars á móti Írlandi og hann ætti nú að vera orðinn leikfær þá. Gareth Bale er nýbúinn að framlengja samning sinn við Real Madrid til ársins 2022. Bale hefur skorað 11 mörk í 20 leikjum í öllum keppnum með Real Madrid og Wales á þessu tímabili. Gareth Bale hefur enn ekki skorað í deildarleik á móti Barcelona og biðin eftir fyrsta markinu á móti erkifjendunum lengist enn. Hann skoraði aftur á móti sigurmarkið í bikarúrslitaleiknum á móti Barca árið 2014.
Fótbolti HM 2018 í Rússlandi Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira