Stelpurnar hans Þóris unnu sigur á Rússum Smári Jökull Jónsson skrifar 27. nóvember 2016 19:30 Þórir á góðri stundu
Þórir Hergeirsson og leikmenn hans í norska kvennalandsliðinu í handknattleik mættu því danska á æfingamóti í Noregi í dag. Liðin undirbúa sig af krafti fyrir EM í Svíþjóð sem hefst í byrjun desember. Norsku stelpurnar unnu góðan sigur á sterku liði Frakklands í gær og í dag var komið að öðrum stórleik, gegn feykisterku rússnesku liði. Noregur er ríkjandi Heims- og Evrópumeistari en þær misstu af Ólympíugullinu í Ríó í sumar eftir tap, einmitt gegn Rússum í háspennuleik í undanúrslitum. Þær unnu hins vegar brons eftir sigur á Hollendingum í leiknum um 3.sætið. Fyrri hálfleikurinn í dag var jafn og spennandi en Norðmenn þó skrefinu framar. Þær leiddu með einu marki í hálfleik, staðan 15-14. Rússar skoruðu fyrsta mark síðari hálfleiks en norsku stúlkurnar skoruðu þá sex mörk í röð og stungu af. Rússneska liðið náði þó að klóra í bakkann en tókst aldrei að jafna. Þær minnkuðu muninn í 28-26 þegar þrjár sekúndur voru eftir af leiknum og tveggja marka sigur Noregs því staðreynd. Veronica Kristiansen skoraði 7 mörk og var markahæst norsku stelpnanna en Antonia Skorobogatchenko og Anna Vyakhireva skoruðu 4 mörk fyrir Rússa. Evrópumótið í handknattleik kvenna hefst í Svíþjóð þann 4.desember og þar verða Þórir og hans stúlkur í geysisterkum riðli með Svíþjóð, Svartfjallalandi og Hollandi.
Handbolti Mest lesið Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sport Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Enski boltinn McIlroy skaut niður dróna Golf Heimir í vandræðum með flókinn þjóðsöng: „Ég mun ná þessu“ Fótbolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Fótbolti Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira