Körfubolti

Fínasta frumraun hjá Jóni Axel

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Axel Guðmundsson lék sinn fyrsta leik fyrir Davidsson háskólann þegar liðið vann tólf stiga sigur, 86-74, á Appalachian State í nótt.

Jón Axel var í byrjunarliði Davidsson og skilaði sínu. Grindvíkingurinn spilaði í 24 mínútur; skoraði 11 stig, tók þrjú fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Jón Axel hitti úr þremur af sex skotum sínum utan af velli og nýtti öll fjögur vítaskotin sín.

Elvar Már Friðriksson skoraði tíu stig og gaf fimm stoðsendingar fyrir Barry sem bar sigurorð af Johnson & Wales, 93-77.

Elvar Már, sem er á sínu öðru ári hjá Barry, hitti úr þremur af sjö skotum sínum utan af velli og kláraði þrjú af fjórum vítum sem hann tók.

Hildur Björg Kjartansdóttir og stöllur hennar í Texas Rio Grande Valley töpuðu fyrir Nebraska, 71-53, á útivelli.

Hildur Björg skoraði aðeins eitt stig og klikkaði á öllum sex skotum sínum utan af velli. Hún tók hins vegar 11 fráköst, næstflest allra á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×