Danir framlengja landamæraeftirlit Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 14. nóvember 2016 20:02 Danir hertu eftirlit við þýsku landamærin 4. janúar síðastliðinn, á sama tíma og Svíar hertu eftirlit með dönsku landamærin. vísir/epa
Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að framlengja eftirlit með landamærum sínum um þrjá mánuði, eða til 12. febrúar næstkomandi. Ákvörðunin er tekin eftir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf fimm þjóðum heimild til þess að halda eftirlitinu áfram. Þjóðirnar fimm eru, auk Danmerkur, Svíþjóð, Noregur, Þýskaland og Austurríki, en þegar hafa Svíar og Norðmenn ákveðið að framlengja eftirlitinu. Danir hertu eftirlit við þýsku landamærin 4. janúar síðastliðinn, á sama tíma og Svíar hertu eftirlit með dönsku landamærin. Inger Støjberg, innflytjendamálaráðherra Danmerkur, sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hún sagðist afar sátt við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um áframhaldandi eftirlit. „Á meðan það er ekkert eftirlit með ytri landamærum Evrópu, þá þurfum við sjálf að stýra því hverjir fá að fara yfir þau,“ sagði Støjberg í yfirlýsingunni. „Það er enn hætta á að flóttamenn og innflytjendur, sem eru ekki með fullnægjandi persónuskilríki, ílengist í okkar landi ef þeir fá ekki að ferðast yfir til Svíþjóðar. Þess vegna er nauðsynlegt að halda landamæraeftirlitinu áfram,“ bætti hún við. Mjög hefur dregið úr fjölda flóttafólks til Danmerkur frá því að landamæraeftirlit var hert. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 sóttu alls 5.300 manns um hæli í landinu, en á síðasta ári var heildarfjöldinn 21 þúsund.
Flóttamenn Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira