Körfubolti

Martin var valinn maður leiksins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Martin Hermannsson.
Martin Hermannsson. vísir/anton
Martin Hermannsson fór á kostum með liði sínu, Charleville-Mézierez, í franska körfuboltanum í kvöld.

Hann skoraði 26 stig í 79-69 sigri liðsins gegn Poitiers og var valinn maður leiksins.

Hann var með rúmlega 62 prósent skotnýtingu og tók líka þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.

Lið Martins er í öðru sæti í frönsku B-deildinni eftir leik kvöldsins.

Haukur Helgi Pálsson átti einnig flottan leik í sömu deild í kvöld er hann skoraði 8 stig, tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar fyrir Rouen sem lagði Vichy-Clermont, 76-70.

Rouen er í fimmtánda sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×