Þórir með þrefalda tvennu í stórsigri KR | Fjölnismenn með öruggan sigur Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. nóvember 2016 20:58 Lærisveinar Finns áttu ekki í vandræðum gegn Gnúpverjum. Vísir/Anton
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, Tóti Túrbó, fór á kostum í öruggum 111-53 sigri KR á Gnúpverjum í 32-liða úrslitum Maltbikarsins í körfubolta í kvöld en á sama tíma komst Fjölnir í 16-liða úrslit eftir sigur á ÍA. KR var ekkert í því að vanmeta Gnúpverja og náði strax 15-0 forskoti á fyrstu mínútunum og leiddi 27-9 að fyrsta leikhluta loknum. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, gat dreift álaginu vel og fengu fjórtán leikmenn KR að spreyta sig í kvöld. KR leiddi 54-22 í hálfleik og sigldi sigrinum örugglega heim en Þórir var manna bestur með 32 stig, 12 fráköst og 12 stoðsendingar í leiknum en Snorri Hrafnkelsson bætti við nítján stigum. Í liði Gnúpverja var Tómas Steindórsson stigahæstur með 18 stig ásamt því að taka 8 fráköst en Þórir Sigvaldason kom næstur með níu stig. Í seinni leik dagsins unnu Fjölnismenn öruggan 23 stiga sigur á ÍA á Akranesi 90-67 en Fjölnismenn náðu strax sextán stiga forskoti í fyrri hálfleik og hleyptu Skagamönnum aldrei inn í leikinn á ný. Collin Anthony Pryor fór fyrir liði Fjölnis með 26 stig, 14 fráköst og átta fráköst en í liði ÍA var Derek Daniel Shouse með tvöfalda tvennu með 29 stig og 10 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira