Njarðvíkingar mæta með leynigest í Keflavík í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2016 18:37 Hjörtur Hrafn Einarsson. Vísir/Vilhelm
Hjörtur Hrafn Einarsson snýr aftur í lið Njarðvíkur í kvöld þegar liðið heimsækir nágranna sína í Keflavík í 32 liða úrslitum Maltbikarsins í körfubolta. Þessi kröftugi framherji mun styrkja liðið í baráttunni undir körfunni. Hjörtur Hrafn hefur ekkert spilað með Njarðvíkurliðinu á þessu tímabili og það leit út fyrir að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Hann er samt bara 27 ára gamall og því vonuðust Njarðvíkingar alltaf til þess að hann myndi snúa aftur. Von þeirra hefur nú ræst. Njarðvíkingar tilkynntu það á fésbókarsíðu sinni í kvöld að Hjörtur Hrafn verði aftur í búning í þessum leik. Hjörtur Hrafn er eini leikmaður Njarðvíkur sem var í síðasta Íslandsmeistaraliði félagsins árið 2006. Hann var þá að stíga sín fyrstu spor með meistaraflokki og hafði spilað með liðinu samfellt þar til í haust. Hjörtur Hrafn var með 6,0 stig og 3,2 fráköst að meðaltali með liðinu á síðustu leiktíð. Njarðvíkingar eru með öfluga bakverðir en vantar meiri breidd nálægt körfunni. Þrátt fyrir að vera enginn risi þá er Hjörtur Hrafn nautsterkur og öflugur í baráttunni undir körfunni. „Við bjóðum Hjört velkominn aftur á parketið en hans kraftar munu nýtast einkar vel í þeirri baráttu sem framundan er,“ segir í tilkynningu Njarðvíkinga. Það verður fylgst með gangi mála í leiknum í beinni textalýsingu hér inn á Vísi.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira