Lokeren ætlar að bjóða í Gary Martin Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2016 12:30 Gary Martin stóð sig vel hjá Lilleström og gæti haldið áfram þar eða farið til Lokeren. mynd/lsk.no
Belgíska úrvalsdeildarliðið Lokeren ætlar nú að gera Pepsi-deildarliði Víkings tilboð í Gary Martin á næstu vikum, samkvæmt heimildum Vísis. Gary gekk í raðir Víkings frá KR síðasta haust og gerði þriggja ára samning við Fossvogsfélagið. Hann skoraði fimm mörk í þrettán leikjum fyrir Víking í Pepsi-deildinni áður en hann var lánaður til Lilleström. Rúnar Kristinsson, þáverandi þjálfari Lilleström, sóttist eftir kröftum Gary en saman urðu þeir Íslandsmeistarar í tvígang með KR. Rúnar var rekinn frá norska liðinu en er nú orðinn þjálfari Lokeren og vill aftur fá Gary til sín, samkvæmt heimildum Vísis. Gary Martin skoraði fjögur mörk í tíu leikjum fyrir Lilleström og átti sinn þátt í því að liðið hélt sæti sínu í norsku úrvalsdeildinni. Það var í fallbaráttu fram í lokaumferðina en verður áfram á meðal þeirra bestu. Fótboltavefsíðan 433.is greindi frá því í gær að Lilleström vill halda Gary hjá félaginu og kaupa hann frá Víkingum. Þá hefur verið hávær orðrómur um áhuga FH og Vals á enska framherjanum en það virðist alltaf ólíklegra að hann verði áfram í herbúðum Víkings. Auk Rúnars eru á mála hjá Lokeren tveir íslenskir landsliðsmenn; bakvörðurinn Ari Freyr Skúlason og miðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason.
Íslenski boltinn Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Einn sá besti snýr aftur Sport Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Sjá meira