Hörður Axel yfirgefur Keflavík eftir aðeins tvo leiki Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. október 2016 09:36 Hörður Axel Vilhjálmsson er farinn aftur í atvinnumennsku. vísir/valli
Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur í Domino's-deild karla í körfubolta, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Keflavíkurliðið í bili, samkvæmt heimildum Vísis. Íslenski landsliðsmaðurinn er á leið til belgíska úrvalsdeildarliðsins Hubo Limburg United en Hörður Axel flaug út í morgun. Þetta kom upp seint í gærkvöldi og er Hörður nú á leið til Belgíu. Samningurinn er stuttur til að byrja með, samkvæmt heimildum Vísis og því ekki útilokað að Hörður Axel snúi aftur til Keflavíkur. Hörður Axel kom til Keflavíkur daginn áður en Domino's-deildin hófst en leikstjórnandinn var búinn að vera í stríði við grískt lið sem vildi ekki sleppa honum. Það tókst á síðustu stundu og mætti hann í leik Njarðvíkur og Keflavíkur í fyrsta leik deildarinnar sem Keflavík vann í Ljónagryfjunni. Hann náði einnig öðrum leik tímabilsins með Keflavík þar sem liðið tapaði fyrir Þór í Þorlákshöfn. Hörður Axel kveður Keflavík með fjórtán stig að meðaltali í leik, 4,5 fráköst og 4,5 stoðsendingar. Limburg United er í sjötta sæti belgísku úrvalsdeildarinnar af tíu liðum með einn sigur og þrjú töp í fyrstu fjórum umferðunum. Liðið varð í fjórða sæti á síðustu leiktíð og komst í undanúrslitin í úrslitakeppninni. Í ár spilar belgíska liðið í FIBA Europe Cup. Hörður Axel hefur áður spilað með MBC í Þýskalandi, CB Valladolid á Spáni, Aries Trikala í Grikklandi og CEZ Nymburk í Tékklandi.
Dominos-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira