Skráning í Jólastjörnuna 2016 hófst í morgun. Í ár er Jólastjarnan haldin í fimmta skiptið en hér fá ungir söngsnillingar tækifæri á að syngja með Jólagestum í Höllinni í söngkeppni fyrir 16 ára og yngri.
Til að taka þátt skulu þátttakendur senda myndband af sér að syngja á skráningarsíðu Jólastjörnunnar á Vísi. Þátttakendur syngja lag að eigin vali, með sínu nefi og senda hlekk á myndbandsupptöku af söngnum á skráningarsíðu Vísis.
12 bestu söngvararnir að mati dómnefndar verða boðaðir í prufur og eftir þær mun sigurvegarinn koma í ljós. Stöð 2 gerir sérstaka þáttaröð um allt ferlið og verða þrír þættir sýndir í seinni hluta nóvember. Í fyrstu tveimur koma keppendurnir tólf í prufur og í þeim þriðja er sigurvegarinn afhjúpaður.
Sigurvegarinn mun syngja með Jólagestum Björgvins, 10. desember í Laugardalshöllinni. Hálfdán Helgi Matthíasson bar sigur úr býtum í Jólastjörnunni 2015 en hann var valin úr hópi um tvö hundruð barna sem sóttu um með því að senda myndbönd inn á Vísi.
Jólastjarnan 2014 var Gunnar Hrafn Kristjánsson, 11 ára drengur, nemandi í Salaskóla í Kópavogi. Jólastjarnan 2013 var Eik Haraldsdóttir, fædd og uppalin á Akureyri. Stella Kaldalóns sigraði keppnina árið 2012, sem kom henni ánægjulega á óvart en skólasystkini hennar voru aldrei í vafa um að hún myndi vinna.
Hinn 14 ára gamli Aron Hannes Emilsson frá Grundarfirði bar á sigur úr býtum í fyrstu keppninni og kom fram þann 3. desember 2011.
Hér má skrá sig til leiks.
Skráning í Jólastjörnuna hafin
Stefán Árni Pálsson skrifar
