Fyrrverandi leikmaður Barcelona á Krókinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. september 2016 14:15 Samb í leik með Barcelona fyrir nokkrum árum. vísir/getty
Tindastóll hefur samið við miðherjann Mamadou Samb um að leika með liðinu í Domino's deild karla í körfubolta í vetur. Þetta kemur fram á vef Feykis en þar er talað um að Samb sé einn besti leikmaður sem Tindastóll hefur náð í lengi. Samb þessi er frá Senegal en fluttist 14 ára gamall til Spánar og er með spænskan ríkisborgararétt. Samb er 26 ára og telur 2,08 metra. Samb kemur í stað Bandaríkjamannsins Antonio Hester sem átti að koma á Krókinn. Stólarnir tefla fram tveimur erlendum leikmönnum í vetur en félagið var þegar búið að semja við Seck Pape Abdoulaye frá Senegal. Samb hefur undanfarin tvö tímabil leikið með CB Breogán í næstefstu deild á Spáni. Hann var með 9,6 stig og 4,1 frákast að meðaltali í leik í fyrra. Samb var á sínum tíma á mála hjá Barcelona og lék með Jóni Arnóri Stefánssyni hjá Granada.Sjá einnig: Israel Martin aftur á Krókinn Stefán Jónsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, kveðst í samtali við Feyki vera afar ánægður með þessi félagaskipti. „Það er alveg á tæru að það er farið að skila sér hressilega í Skagafjörðinn að vera með færa þjálfara innan sinna raða og mikið ánægjuefni fyrir okkur að geta fengið leikmann til okkar af þessu kaliberi,“ er haft eftir Stefáni. „Þjálfari liðsins Jou Costa þekkir leikmaninn vel sem þjálfari hans fyrir nokkrum árum. Mamadou Samb hefur leikið með mörgum liðum á Spáni meðal annars hefur hann leikið með okkar besta leikmanni Jóni Arnóri Stefánssyni sem og að vera á mála hjá stórliði Barcelona.“ Tindastóll sækir Íslands- og bikarmeistara KR heim í 1. umferð Domino's deildarinnar 6. október næstkomandi.
Dominos-deild karla Körfubolti Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira