Best í fyrri umferðinni: Deildin er jafnari en oft áður Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júlí 2016 15:00
Stjörnukonan Harpa Þorsteinsdóttir var valin besti leikmaður umferða 1-9 í Pepsi-deild kvenna en greint frá þessu í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar í hádeginu. Harpa hefur farið á kostum með Stjörnunni í sumar og skorað 13 mörk í fyrstu níu leikjum tímabilsins. Stjörnunni hefur líka gengið ljómandi vel en liðið situr á toppi Pepsi-deildarinnar með 22 stig, einu stigi á undan Íslandsmeisturum Breiðabliks. „Við erum gríðarlega sáttar eftir fyrri umferðina,“ sagði Harpa í samtali við Kjartan Atla Kjartansson í hádeginu. Stjarnan, Breiðablik og Valur eru í þremur efstu sætum deildarinnar en Harpa segir að fleiri lið geti gert sig gildandi í toppbaráttunni. „Fleiri lið geta blandað sér í þessa baráttu. Þetta er miklu jafnari deild en oft áður. Liðin eru sum hver að styrkjast með hverjum leiknum,“ sagði Harpa og nefnir t.d. lið eins og Þór/KA og ÍBV sem hafa náð góðum úrslitum að undanförnu. Stjarnan er sem áður sagði á toppi Pepsi-deildarinnar og búin að ná í 22 stig af 27 mögulegum. En hver er galdurinn á bak við þennan góða árangur? „Við erum með kjarna sem er búinn að spila lengi saman og reynslumikla leikmenn sem vita hvað til þarf til að vera á toppnum. Svo erum við með jafnan hóp og góða leikmenn fyrir utan byrjunarliðið,“ sagði Harpa.Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira