Sautján stiga sigur og Ísland í undanúrslit Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júlí 2016 16:31 Íslensku stelpurnar hafa staðið sig frábærlega á EM. mynd/fibaeurope
Stelpurnar í íslenska körfuboltalandsliðinu skipað leikmönnum 18 ára og yngri tryggðu sér nú rétt í þessu sæti í undanúrslitum í B-deild Evrópumótsins með 17 stiga sigri, 85-68, á Hvíta-Rússlandi. Íslensku stelpurnar, sem hafa unnið fjóra af fimm leikjum sínum á EM, mæta Grikkjum í undanúrslitunum á morgun. Hvít-Rússar, sem unnu alla sína leiki í riðlakeppninni, byrjuðu leikinn mun betur og komust strax í 8-0. Það hafði lítil áhrif á íslenska liðið sem vann sig hægt og rólega inn í leikinn og náði forystunni, 19-17, áður en 1. leikhluti var allur. Annar leikhlutinn var jafn framan af en íslensku stelpurnar náðu mjög góðum kafla fyrir hálfleik og leiddu með sjö stigum, 42-35, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Hvít-Rússar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og minnkuðu muninn í tvö stig, 44-42. En þá gaf Ísland í, skoraði sjö stig í röð og komst níu stigum yfir, 51-42. Fimm stigum munaði á liðunum eftir 3. leikhluta, 60-55, en sá fjórði var eign íslenska liðsins. Stelpurnar héldu Hvít-Rússum í aðeins 13 stigum og skoruðu sjálfar 25 stig. Lokatölur 85-68. Emelía Ósk Gunnarsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 20 stig. Sylvía Rún Hálfdanardóttir kom næst með 15 stig, auk þess sem hún tók níu fráköst og stal boltanum sex sinnum. Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 14 stig og Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 11 stig og tók sex fráköst. Björk Gunnarsdóttir skoraði níu stig og gaf fimm stoðsendingar en íslenska liðið vann þær mínútur sem hún var inni á vellinum með 20 stigum.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira